Böðvar ætlar að koma með Keflavíkur-hugsunarháttinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2009 11:45 Böðvar Þórir Kristjánsson nýr þjálfari 1. deildarliðs Þórs frá Akureyri. Mynd/Heimasíða Þórsara
Böðvar Þórir Kristjánsson er nýr þjálfari 1. deildarliðs Þórs frá Akureyri í körfunni en Böðvar mun taka við starfi Hrafns Kristjánssonar sem hætti með liðið í kjölfar þess að Þórsarar féllu úr Iceland Express deild karla í vetur. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórsara. Böðvar er 38 ára gamall Keflvíkingur sem hefur bæði leikið með Keflavík og Þór í úrvalsdeild. Hann kom fyrst norður til Akureyrar til að spila með Þór árið 1995. Böðvar er að fá sitt fyrsta tækifæri með meistaraflokk en hann hefur þjálfað bæði drengja- og unglingaflokk hjá Keflavík og Þór. „Mér líst mjög vel á starfið það er verið að taka körfuboltann á Akureyri í naflaskoðun. Stefnan er sett á að styrkja yngri flokka starfi á næstu árum og í kjölfarið muni meistaraflokkur skila sér í fremstu röð að nýju," sagði Böðvar í viðtali á www.thorsport.is. Böðvar sagðist ennfremur ætla að koma með Keflavíkur-hugsunarháttinn og léttleikann inn í Þórsliðið. Kári Þorleifsson, formaður Körfuknattleiksdeildar, segir félagið ætla byggja liðið upp á þeim leikmönnum sem eru á svæðinu en að það sé ekkert útilokað að liðið fái frekari liðsstyrk.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Enski boltinn Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Enski boltinn Glódísar-æði hefur gripið um sig: „Ég kom til að horfa á Glódísi“ Fótbolti Halla forseti bauð þeim báðum á Bessastaði Sport Skip Bayless kærður fyrir kynferðislega áreitni Sport „Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“ Handbolti Annað enskt barn heimsmeistari Sport Slógu golfbolta hvors annars og misstu af milljónum Golf Fékk að halda áfram að spila þrátt fyrir að hafa fengið rautt Fótbolti Gerrard að verða afi Fótbolti Fleiri fréttir Medina með rosatölur þegar Hamar vann toppliðið Körfuboltakvöld: Geta Tindastólstelpurnar orðið Íslandsmeistarar? „Er þetta einn af þreyttustu leikmönnunum í NBA?“ Hrafn frá KR í Stjörnuna Unnu fimmtánda leikinn í röð þegar meistararnir komu í heimsókn Njarðvík á að stefna á þann stóra Körfuboltakvöld. Framlenging 12. umferðar Uppgjörið: Keflavík - Valur 77-65 | Anna Ingunn reyndist Keflavík dýrmæt á ögurstundu Aðallega þeir tveir sem við erum að spenntir að fá inn í þetta Uppgjörið: Valur - Stjarnan 83-79 | Nokkuð óvæntur sigur heimamanna Martin glímir við meiðsli í hásin Allt er fertugum LeBron fært „Þetta er það sem gerir þá öðruvísi en önnur lið“ Tryggvi Snær öflugur en það dugði skammt Tindastóll upp fyrir Njarðvík Haukar og Hamar/Þór með góða sigra Uppgjörið: Grindavík - Þór Ak. 64-84 | Þór hafði betur í Smáranum Í bann fyrir skaðlega framkomu og dyrnar opnar „Hann er með vonir og væntingar heils bæjarfélags á bakinu“ „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Uppgjörið: KR - Tindastóll 95-116 | Jólamaturinn fór betur í gestina Uppgjörið: Höttur - Haukar 86-89 | Gestirnir unnu botnslaginn á Egilsstöðum Butler vill í burtu: Tilbúinn að spila með öllum liðum nema Miami Heat Friðrik um viðskilnaðinn við Keflavík: „Ákvað að standa með sjálfum mér“ Fótbrotnaði í NBA leik Var aðdáandi Chiefs áður en Mahomes og Travis mættu til sögunnar „Stoltur af strákunum sem eru að taka töluvert meiri ábyrgð“ „Það er krísa“ Uppgjörið: Keflavík - Álftanes 87-89 | Langþráður sigur Álftnesinga Tryggvi Snær tók flest fráköst í góðum sigri Sjá meira