Körfubolti

Hengja upp treyju lág­vaxnasta leik­mannsins í sögu NBA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Charlotte Hornets ætlar að hengja upp treyju númer eitt til heiðurs Muggsy Bogues.
Charlotte Hornets ætlar að hengja upp treyju númer eitt til heiðurs Muggsy Bogues. @hornets

NBA-körfuboltafélagið Charlotte Hornets ætlar að hengja upp treyju númer eitt til heiðurs Muggsy Bogues, en hann er lágvaxnasti leikmaðurinn í sögu NBA, þann 11. febrúar.

Bogues, sem er aðeins 160 sentímetrar á hæð, lék tíu af fjórtán tímabilum sínum í NBA með Charlotte eða frá 1988 til 1998 og á félagsmet í stoðsendingum, stolnum boltum og spiluðum mínútum.

„Er það ekki kaldhæðnislegt?“ sagði Bogues. „Eftir öll þau skipti sem manni fannst maður vera að horfa upp til fólks í svo mörg ár. Svo kemur þessi stund, og þegar treyjan fer loksins upp verður það eins og ég sé sá sem horfir niður á allan heiminn. Þetta verður óraunveruleg stund,“ sagði Bogues

Bogues, sem er 61 árs, hefur starfað hjá Hornets í meira en tuttugu ár sem leikmaður og sendiherra félagsins, eftir að hafa fyrst gengið til liðs við það í stækkunarnýliðavalinu árið 1988.

„Charlotte tók á móti mér með opnum örmum. Þetta er staður sem ég hef kallað heimili mitt lengur en nokkurn annan stað, jafnvel lengur en Baltimore þar sem ég ólst upp. Að hljóta slíka viðurkenningu fyrir fjölskyldu mína, að félagið líti á mann með þessum hætti, það skiptir mig öllu máli,“ sagði Bogues

Eigendur Hornets, Rick Schnall og Gabe Plotkin, tóku ákvörðunina um að heiðra treyju Bogues númer eitt til að viðhalda tengslum félagsins við sögu sína og goðsagnir.

„Ég var eins og hver annar krakki sem átti sér draum,“ sagði Bogues. „Ég hélt bara áfram að trúa og hélt áfram að ná árangri. Og hugarfar mitt var: Ef þú spilar gegn þeim bestu og nærð árangri gegn þeim bestu, þá átt þú heima meðal þeirra bestu,“ sagði Bogues

Bogues bætist í hóp með Bobby Phills (númer 13) og Dell Curry (númer 30), en þeir eru einu þrír leikmennirnir sem Hornets hafa heiðrað með því að hengja upp treyjur þeirra.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×