Enski boltinn

Ibrahimovic: Chelsea er að reyna að kaupa mig

Ómar Þorgeirsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. Nordic photos/AFP

Haft er eftir sænska framherjanum Zlatan Ibrahimovic í nýlegu viðtali við breska götublaðið News of the Word að Chelsea sé að reyna að kaupa hann frá Inter.

Sögusagnir herma að Chelsea ætli að gera ein stórkaup í sumar og Ibrahimovic fellur klárlega undir þann stimpil en Real Madrid, Barcelona og Manchester United hafa öll verið orðuð við kappann í sumar.

Forráðamenn Inter eru hins vegar taldir tregir til þess að selja og Ibrahimovic kveðst ennfremur sjálfur vera ánægður í herbúðum félagsins þó svo að hann sé upp með sér að vera orðaður við önnur félög.

„Ég veit af áhuga Chelsea og það er mikill heiður að slíkt félag sýni manni áhuga. Þetta er eitt af stærstu félögum heims og enska úrvalsdeildin er besta deild í heimi. Þetta snýst ekki um peninga og ég mun byggja ákvörðun mína um framtíðina í boltanum á því hvað sé best fyrir mig og hvað henti mér," segir Ibrahimovic.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×