Viðskipti erlent

Óttast mengun á erfðavísum villtra þorska

Úr fiskeldisstöð.
Úr fiskeldisstöð.

Náttúruverndarsinnar óttast að aukning þorskeldis muni leiða til frekari flótta þorsks úr þorskeldum sem leiði til mengunar á erfðavísum villtra þorska. Náttúruverndarsinnar hafa komið þessum áhyggjum sínum á framfæri vegna mikillar aukningar þorskeldis í Evrópu.

Noregur er langstærsta þorskeldisþjóð heims með um 80% markaðshlutdeild á heimsvísu.

Árið 2007 var framleiðsla þorskeldis í Noregi 10.375 tonn en ári síðar nam framleiðslan 16.523 tonnum, framleiðslan jókst því um 59% milli ára. Náttúrusinnar óttast þær afleiðingar sem aukning þorskeldisins gæti haft í för með sér ef eldisþorskurinn nær að losna úr þorskeldinu og þar með blandast villtum þorski í hafinu.

Um það bil 228 þúsund eldisþorskar losnuðu út í hafið við Noregsstrendur árið 2008, samanborið við um 100 þúsund eldislaxa, jafnvel þótt laxeldi sé um 60 sinnum umfangsmeira en þorskeldi. Þegar þorskinum tekst að losna og hrygna út í hafið er hætta á að hann dreifi sjúkdómum í hinn náttúrulega stofn.

Sú staðreynd, að þorskeldi hefur aukist gríðarlega um heim allann á undanförnum árum, ýtir undir ótta náttúruverndarsinna.

Í Noregi hefur þorskeldi aukist úr 248 tonnum árið 2002 í 16.523 tonn árið 2009 eða meira en 6500% aukning á sjö árum.

Framleiðsla á eldisþorski fer fram í Bandaríkjunum, Kanada, Íslandi og Danmörku auk Noregs.

Heildar heimsframleiðsla á eldisþorski nemur um 20.000 tonnum samkvæmt heimildum Guardian. Samkvæmt því framleiða fyrrgreindar þjóðir, utan Noregs, innan við 3.500 tonn af því magni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×