Enski boltinn

Elano spenntur fyrir Lazio

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Elano fagnar marki í leik með City.
Elano fagnar marki í leik með City. Nordic Photos / Getty Images
Brasilíumaðurinn Elano segir að það komi vel til greina að fara til Lazio á Ítalíu en hann hefur lítið fengið að spila með Manchester City á leiktíðinni.

„Það væri ekkert mál fyrir mig að spila á Ítalíu. Lazio er með mjög gott lið," sagði Elano í samtali við ítalska fjölmiðla.

„Ég get ekkert meira sagt í bili. Nú þarf ég að ræða við City og mun ég gera það fljótega svo ég geti ákveðið hvað ég muni gera."

„En ég hef heyrt að Lazio hafi áhuga og er ég ánægður með að svo stórt lið skuli vera að fylgjast með mér."

Elano byrjaði mjög vel í síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni en síðan þá hefur fjarað verulega undan honum í liði City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×