Hildur tryggði KR sigur á Keflavík Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. febrúar 2009 21:06 Hildur Sigurðardóttir í leik með KR. Mynd/Vilhelm
Haukar unnu í kvöld sigur á Hamar í Hveragerði, 72-63, en á sama tíma vann KR góðan sigur á Keflavík í æsispennandi leik, 78-74. Haukar eru í efsta sæti A-riðils og öruggir með sitt sæti í undanúrslitunum í úrslitakeppninni en tvö efstu liðin í A-riðli fara beint í undanúrslitin en hin liðin tvö auk efstu tveggja liðanna í B-riðli mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. En þrátt fyrir tapið í kvöld er Keflavík með sex stiga forystu á bæði Hamar og KR. Keflavík með 24 stig en hin liðin tvö með átján. Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 28 stig fyrir Hauka og tók sjö fráköst. Slavica Dimovska kom næst með nítján stig. Hjá Hamar var La Kiste Barkus stigahæst með 31 stig auk þess sem hún tók átta fráköst. Julia Demirer skoraði sautján stig og tók sextán fráköst. Leikur KR og Keflavíkur var sem fyrr segir spennandi og í járnum síðustu mínútur leiksins. Staðan í hálfleik var 41-34, KR í vil, en Keflavík kom sér í forystu í þriðja leikhluta. Leikurinn var svo mjög jafn undir lokin. Það var Hildur Sigurðardóttir sem tryggði KR sigur með sniðskoti þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka eftir að Pálína Gunnlaugsdóttir hafði misnotað skot fyrir Keflavík skömmu áður. Keflavík hafði því þrjár sekúndur til að svara en Svava Ósk Stefánsdóttir kastaði boltanum beint út af úr innkastinu og fengu því KR-ingar boltann á nýjan leik. Svava braut strax á Guðrúnu Ámundadóttur sem nýtti bæði vítaskotin sín og þar við sat. Hildur skoraði 21 stig fyrir KR og tók átta fráköst. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir kom næst með þrettán stig. Hjá Keflavík var Birna Valgarðsdóttir stigahæst með 29 stig og níu fráköst. Pálína kom næst með sautján stig. Þá fór einn leikur fram í B-riðlinum en þar vann Valur sigur á Snæfelli, 76-67. Valur er nú með átján stig í efsta sæti B-riðilsins en Grindavík kemust næst með tólf. Snæfell er með sex stig og Fjölnir tvö.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira