Viðskipti erlent

Bresk stjórnvöld æf af reiði út í skilanefnd Landsbankans

Bresk stjórnvöld munu vera æf af reiði út í skilanefnd Landsbankans sökum áforma þeirra um að setja Baug í greiðslustöðvun. Þetta kemur fram í grein sem viðskiptafréttastjóri blaðsins The Times skrifar í dag.

"Deilan milli Bretlands og Íslands vegna hruns íslenska bankakerfisins er nú að byrja að láta Þorskastríðin líta út eins og huggulega fiskmáltíð," Þannig hefst grein David Wighton um málið. "Fjármálaráðuneytið snýtir rauðu sökum þess að ekkert samráð var haft við ráðuneytið um að setja félag sem á stóran hluta af breska verslunargeiranum í greiðslustöðvun."

Fram kemur í grein Wighton að bresk stjórnvöld hafi mikinn áhuga á örlögum Baugs þar sem að helsti lánadrottinn félagsins, Landsbankinn (nú íslenska ríkið), skuldar breskum stjórnvöldum hundruðir milljóna punda eftir að stjórnvöldin tóku að sér að greiða út innistæður af Icesave-reikningunum.

Þar að auki hafa stjórnvöld í Bretlandi aðstoðað við að halda verslunarkeðjum Baugs gangandi yfir jólavertíðina síðustu með lánveitingum. Fram kom í frétt hér á Fréttastofu í desember að Landsbankinn hefði fengið 100 milljón punda lán frá stjórnvöldunum af þessum sökum.

Bresk stjórnvöld hafa ekki áhuga á að bíða, jafnvel árum saman, eftir því að eignir Baugs verði seldar í Bretlandi eins og skilanefnd Landsbankans hefur hugsað sér að gera. Bretar vilja að þessar eignir verði seldar fyrr en seinna.

Fréttina má nálgast hér.

 














Fleiri fréttir

Sjá meira


×