Enski boltinn

Milan hafnaði risatilboði í Pato

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pato.
Pato. Nordic Photos/Getty Images

Fjölmiðlar segja að AC Milan hafi hafnað risatilboði í brasilíska framherjann Pato þó svo Milan haldi því fram að engin tilboð hafi borist í leikmanninn.

Vitað er af áhuga Chelsea á leikmanninum og er almennt talið að tilboðið hafi komið frá Chelsea.

AC Milan sagði ekki koma til greina að selja fleiri stórstjörnur félagsins eftir að Kaká var seldur til Real Madrid.

Sögur hafa verið um að Chelsea vilji líka fá Andrea Pirlo en Milan segir Chelsea ekki hafa gert tilboð í miðjumanninn magnaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×