Framleiðir leikrit með Titanic-stjörnu í Los Angeles 9. febrúar 2009 02:30 Óskar ásamt stjörnunum tveimr, þeim Paul Ben Victor og Frances Fischer sem er barnsmóðir Íslandsvinarins Clint Eastwood. Fyrir miðju er síðan leikstjórinn Gary Bloomsack.
Leikverkið Sexy Laundry er tilnefnt til þriggja verðlauna hjá tímaritinu LA Weekly en það þykja virtustu leikhúsverðlaunin í Englaborginni. Einn framleiðandi verksins er Íslendingurinn Óskar Eiríksson og hann var að vonum ákaflega glaður yfir þessum fréttum þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Þetta eru víst stærstu verðlaunin í borginni þótt þau telji lítið á ameríska vísu," segir Óskar og er þar að vísa meðal annars til Tony-verðlaunanna sem eru hálfgerð Óskarsverðlaun fyrir bandarískt leikhúsfólk. Í LA er þó urmullinn allur af leikhúsum og þar er mjög blómlegt leikhúslíf þótt allra augu beinist að sjálfsögðu að kvikmyndaframleiðslunni í Hollywood. Sexy Laundry er tilnefnt sem besti einleikurinn, besti leikstjóri einleiks og besta leikmyndin. Óskar hefur lítið fengist við leikhúsframleiðslu á Íslandi, setti upp Hundrað prósent hittni með Helgu Brögu fyrir nokkrum árum og hafði veg og vanda af komu munka sem settu á svið mikið sjónarspil í Laugardalshöllinni. Undanfarin tíu ár hefur hann þó alfarið einbeitt sér að útlöndum og framleiðslu leikverka erlendis. „Maður kannski hálfskammast sín fyrir að segja þetta, en maður er bara í útrás. Kannski er það allt í lagi þegar maður í leikhúsbransanum," segir Óskar og hlær. Samstarfsaðilar Óskars í Sexy Laundry eru ekki af verri endanum; William Morris-umboðsskrifstofan og The Netherlanders, einn stærsti leikhúsframleiðandi Bandaríkjanna. „Þeir eiga níu leikhús á Broadway og eru með leikhús um öll Bandaríkin," segir Óskar sem hefur mörg járn í eldinum, á meðal annars Evrópuréttinn að söngleiknum Menopause, söngleik um breytingaskeið kvenna, sem slegið hefur í gegn í Bandaríkjunum og Ástralíu. „Ég reikna með að setja hann upp í Bretlandi, Skandinavíu, Þýskalandi og á Spáni á næstu mánuðum og misserum," segir Óskar og útilokar ekki að verkið rati jafnvel alla leið til Íslands. Hið sama á við um Sexy Laundry, Óskar vonar að það verði sett upp á Íslandi. Verkið fékk frábæra dóma í Varitey þegar það var frumsýnt en aðalleikarnir tveir eru þau Frances Fischer, sem lék meðal annars vondu mömmuna í Titanic og Paul Ben Victor, einn aðalleikaranna úr sjónvarpsþáttunum Entourage. -freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Gene Hackman og eiginkona hans fundust látin Lífið Fluttu með alla fjölskylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“ Lífið Hugsi yfir reynslulausum sérfræðingum Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Var farin að fá kvíðaköst þegar dóttirin bað um að fara í göngutúra Lífið Dóri DNA og Magnea greiddu 126 milljónir fyrir einbýli í Skerjafirði Lífið Fengu aðstoð frá heimamanni: „Þannig að við séum ekki eins og hauslausar hænur“ Lífið Einföld ráð fyrir glæsilegra heimili Lífið Segir föður sinn hafa verið við hestaheilsu Lífið Bjössi og Dísa skáluðu í nýja húsinu Lífið Fleiri fréttir Eiríkur og Þórdís tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Sjá meira