Belgíska stjórnin samþykkir Kaupþingssjóð 6. janúar 2009 14:28
Ríkisstjórn Belgíu samþykkti í dag að stofna sérstakan tryggingarsjóð fyrir innistæðueigendur hjá Kaupþingi í Lúxemborg. Munu belgísk stjórnvöld veita 75 til 100 milljónum evra eða allt að tæplega 17 milljörðum kr. til sjóðsins. Didier Reynders fjármálaráðherra Belgíu segir í samtali við þarlenda fjölmiðla að um einstaka ákvörðun sé að ræða þar sem Kaupþingsbankinn sé staðsettur í Lúxemborg en ekki Belgíu. "Við tókum þessa ákvörðun vegna sambands okkar við Lúxemborg og vegna þess að um 20.000 Belgar eiga reikninga í bankanum," segir Reynders. Þetta þýðir að fari svo að Kaupþing í Lúxemborg verði gjaldþrota munu innistæður Belga þar verða tryggðar að allt að 100.000 evrum á hvern reikning. Þetta þýðir einnig að samningaviðræður um kaup fjárfestingarsjóðs í eigu Líbýu á Kaupþingi í Lúxemborg hefjast á nýju en þeim var frestað eftir að ríkisstjórn Belgíu féll fyrir áramótin.
Mest lesið Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Neytendur „Þetta verður bara heiðarlegur bisness, ég nenni engu kjaftæði“ Viðskipti innlent Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Viðskipti innlent Ísold ráðin markaðsstjóri Viðskipti innlent Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Viðskipti innlent Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Frá Bændasamtökunum til Samorku Viðskipti innlent Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Atvinnulíf Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf Fleiri fréttir Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira