Tina ætlar að heiðra Magic og spila í númer 32 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2009 22:45 Tina Thompson með nýja búninginn sinn sem er númer 32. Mynd/GettyImages
Ein frægasta og virtasta körfuboltakona heims, bandaríski framherjinn Tina Thompson, mun leika með Los Angeles Sparks á næsta tímabili. Thompson hefur leikið allan sinn feril með Houston Comets en varð að finna sér annað lið þegar hennar félag til tólf ára fór á hausinn. Tina Thompson vann WNBA-deildin fjórum sinnum með Houston Comets á árunum 1997 til 2000. Hún er orðin 34 ára gömul en er ekkert að gefa eftir og er enn talin með bestu og fjölhæfustu leikmönnum WNBA-deildarinnar. Hún vann gull með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikunum 2004 og 2008. „Ég er mjög spennt fyrir því að snúa aftur heim. Ég er búin að vera lengi í burtu en nú fæ ég aftur tækifæri til að spila fyrir framan fjölskyldu og vini. Hér hófst körfuboltinn hjá mér," sagði Tina Thompson sem gekk í University of Southern California á sínum tíma. Tina ætlar að spila í treyju númer 32 til heiðurs Magic Johnson. „Ég hef alltaf verið aðdáandi Tinu frá því að hún spilaði með USC," sagði Magic Johnson. „Hún er frábær kona innan sem utan vallar og frábær móðir að auki," sagði Magic en Tina á barn með NBA-leikmanninum Damon Jones sem fæddist í maí 2005. „Hún hefur reynsluna af því að vinna titla og kemur til með að hjá Lisu og Sparks-liðinu að koma með titilinn aftur til LA. Það er mikill heiður fyrir mig að hún ætli að spila í minni gömlu treyju númer 32," sagði Magic Johnson en númer er hans er uppi í rjáfri í Staples Center og ekki í boði fyrir leikmenn Lakers-liðsins. Tina Thompson er önnur stigahæsta kona WNBA-deildarinnar frá upphafi með 5424 stig í 332 leikjum. Thompson mun nú með spila með Lisu leslie sem hefur skorað 5909 stig á sínum ferli í WNBA. Tina hefur skorað 16,3 stig og tekið 6,7 fráköst að meðaltali í WNBA-deildinni.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Sjá meira