Viðskipti erlent

Tvö erfið ár fram undan hjá Toyota

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Akio Toyoda.
Akio Toyoda.

Nýr forstjóri Toyota-bílaverksmiðjanna japönsku, Akio Toyoda, segir tvö mjög erfið ár fram undan hjá fyrirtækinu. Toyoda er barnabarn stofnanda bílaverksmiðjanna og hélt sinn fyrsta blaðamannafund sem forstjóri í gær. Hann segir fyrirtækið þurfa að draga úr framleiðslu þannig að hún verði ekki nema 70 prósent af því sem hægt er að framleiða í verksmiðjunum. Sala Toyota-bíla í Bandaríkjunum hefur dregist saman um 38 prósent á þessu ári en jafnan hefur stærsti hluti útflutnings Toyota farið á markað þar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×