Viðskipti erlent

ECB dælir tröllvöxnum upphæðum inn í bankakerfi Evrópu

Evrópski seðlabankinn (ECB) hefur ákveðið að veita viðskiptabönkum í aðildarlöndum lausafjárfyrirgreiðslu að verðmæti um 80 billjón (þúsundir milljarða) króna eða 442 milljarða evra.

Fjallað er um málið í Hagsjá, vefriti hagfræðideildar Landsbankans. Þar segir að ECB ætli með þessu að freista þess að örva útlán banka til fyrirtækja og einstaklinga og vinna þar með gegn samdrætti á evrusvæðinu.

Þetta er langtum stærsta innspýting sem bankinn hefur ráðist í frá upphafi. Hún jafngildir því að bankinn nær tvöfaldi núverandi fyrirgreiðslu í kerfinu, þar sem hún mun vaxa um 70% og nemur fjárhæðin um 5% af landsframleiðslu aðildarríkjanna.

 

Búist er við að ríflega ellefu hundruð bankar muni nýta sér fyrirgreiðslu ECB. Í boði eru lán til eins árs með 1% vöxtum. Mikla spurn eftir þessum lánum má rekja til þess að markaðsaðilar búast nú við því að vextir fari að stíga upp á við á evrusvæðinu og er hér því um að ræða gott tækifæri til að fjármagna banka á undragóðum kjörum.

Vonir standa til þess að aðgerðin lækki fjármögnunarkostnað banka umtalsvert. Þannig ættu skammtímavextir til eins árs einnig að lækka. Vextir á skemmri endanum á evrusvæðinu eru nú lægri en í Bandaríkjunum. Þá hafa millibankavextir í evrum einnig lækkað, um 2,6 punkta, niður í 1,185%.

 

ECB varaði við því í síðustu viku, að bankar á evrusvæðinu þyrftu á næstu 18 mánuðum að afskrifa um 200 milljarða evra umfram það sem þegar hefur verið afskrifað. Lausafjárfyrirgreiðslan sem tilkynnt var í dag ætti að draga úr neikvæðum áhrifum þessara afskrifta á rekstur viðskiptabankanna






Fleiri fréttir

Sjá meira


×