Hægðu á Nick og Pál Axel en réðu ekkert við Brenton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2009 17:15 Brenton Birmingham skoraði 48 af 88 stigum Grindavíkur í síðasta leik á móti Snæfelli. Mynd/Daníel
Grindavík og Snæfell mætast í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi þeirra í Iceland Express deild karla. Leikurinn fer fram í Grindavík, hefst klukkan 19.15 og verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 Sport. Snæfell vann síðasta leik liðanna með einu stig í Hólminum, 89-88, fyrir aðeins rúmum þremur vikum og þar tókst þeim jafnvel að halda aftur af Nick Bradford og Pál Axel Vilbergssyni eins og þeim gekk illa að stoppa Brenton Birmingham. Framlag þessara lykilmanna Grindavíkur mun örugglega ráða miklu um úrslit einvígisins í ár. Brenton Birmingahm var með 48 stig á 38 mínútum og úr aðeins 23 skotum í umræddum leik þar sem hann hitti meðal annars úr 9 af 13 þriggja stiga skotum sínum. Brenton gerði 55 prósent stig Grindavíkur í leiknum og allar þriggja stiga körfur liðsins nema þrjár. Þeir Páll Axel Vilbergsson og Nick Bradford voru hinsvegar aðeins með 14 stig saman þar sem 11 af 16 skotum þeirra misheppnuðust. Nick Bradford nýtti aðeins 2 af 8 skotum sínum og var með jafnmargar villur (4) og stig í þessum leik. Þeir Páll Axel og Bradford skoruðu saman 39,2 stig að meðaltali í hinum deildarleikjum sínum í vetur. Nick Bradford á annars góðar minningar frá einvígum sínum með Keflavík gegn Snæfelli. Í bæði skiptin vann Keflavík 3-1 í lokaúrslitum og kappinn fékk að lyfta Íslandsmeistarabikarnum. Í síðasta einvígi hans við Snæfell í lokaúrslitunum 2005 var Nick með 23,0 stig, 12,5 fráköst og 6,3 stoðsendingar að meðaltali í leik og var kosinn besti leikmaður úrslitanna. Flest stig í leik í deildarleikjum Grindavíkur og Snæfells í vetur: 1. Brenton Birmingham, Grindavík 33,0 2. Sigurður Þorvaldsson, Snæfell 23,0 3. Lucious Wagner*, Snæfell 22,0 4. Jón Ólafur Jónsson, Snæfell 17,0 5. Arnar Freyr Jónsso, Grindavík 16,0 6. Hlynur Bæringsson, Snæfell 15,0 7. Páll Axel Vilbergsson, Grindavík 14,0 8. Þorleifur Ólafsson, Grindavík 10,0 9. Helgi Jónas Guðfinnsson, Grindavík 8,0 10. Slobodan Subasic, Snæfell 7,0*Spilaði aðeins annan leikinn
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira