Jóhannes hættur með KR 1. apríl 2009 21:57 Mynd/Daníel
Jóhannes Árnason tilkynnti að hann væri hættur að þjálfa kvennalið KR eftir að lið hans tapaði 69-64 fyrir Haukum í oddaleik í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar kvenna í kvöld. "Við erum búin að vinna hörðum höndum í því að koma okkur á þennan stað. Mér líður þannig að við hefðum átt að vinna en það er ekkert við því að gera. Ég óska bara Haukum til hamingju með þetta," sagði Jóhannes í samtali við Vísi. "Markmiðið fyrir tímabilið var að leika til úrslita í öllum keppnum og við gerðum það. Við urðum Reykjavíkurmeistarar, í öðru sæti í Poweradebikarnum, unnum bikarkeppnina og förum í fimmta leik í lokaúrslitum. Fyrirfram hefði ekki verið hægt að byrja um meira þar sem við vorum ekki með erlendan leikmann og vorum í smá basli framan af tímabili," sagði Jóhannes og sagðist stoltur af liði sínu. "Við erum með frábæra leikmenn í okkar liði og þessar stelpur hafa hæfileika sem þær hafa ekki enn fattað sjálfar. Þeirra stjarna á eftir að skína skært í framtíðinni. Þetta eru ungar stelpur sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða," sagði Jóhannes, sem ætlar að láta staðar numið í þjálfun liðsins. "Ég var með þriggja ára markmið um að gera góða hluti með þetta lið og nú er kominn tími til að fara að vinna aftur með litlu krökkunum og hleypa einhverjum betri þjálfara en mér að til að klára dæmið. Það var löngu ákveðið að ég tæki þessi þrjú ár að mér, en nú er ég að fara að opna lögmannsstofu og því er kominn tími á nýjan mann. Það verður væntanlega barist um að fá að þjálfa þessar stelpur," sagði Jóhannes.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira