Gömlu bankarnir hrynja í áliti 17. júní 2009 07:00 Höfuðstöðvar Kaupþings Mynd/GVA
Fjármálageirinn hefur borið mikinn hnekki í huga fólks samkvæmt árvissri ímyndarmælingu markaðsrannsókna- og ráðgjafarfyrirtækisins Fortuna. Ef til vill þarf ekki að koma á óvart að þar sé í huga fólks hæst fall stóru bankanna þriggja, sem nú eru í eigu ríkisins. Sparisjóðirnir hafa hins vegar bætt ímynd sína nokkuð milli ára, bæði hvað varðar hvaða kost fólk myndi fyrstan velja í bankaþjónustu og eins hvað traust varðar og trú á því að fyrirtækin verði starfandi um ókomna tíð. Þarna hefur líka fall gömlu bankanna verið mest. Fortuna beitir djúpgreiningu með viðtalstækni í mati sínu á stöðu fjármálafyrirtækjanna í huga fólks. Í hverjum flokki er svo fundið ákveðið miðgildi 100, eftir meðaltali niðurstaðna og raðast fyrirtækin svo á skalann út frá því og færast til milli ára. Þannig fékk Landsbankinn í fyrra niðurstöðuna 123, með yfirburðastöðu og nýbúinn að halda upp á 120 ára afmæli sitt, þegar fólk var spurt út í hvort það bæri traust til bankans og teldi að hann yrði til staðar um ókomin ár. Þegar mælingin var framkvæmd á ný í mars og apríl á þessu ári, hálfu ári eftir hrun fjármálakerfisins, fékk Landsbankinn í þessum lið einkunnina 88. Í ár fékk Kaupþing lökustu einkunnina, fór úr 90 stigum í 82, meðan Íslandsbanki fékk heldur betri einkunn en fyrir ári, 92 stig í stað 86 stiga áður. Sparisjóðirnir færðust úr 105 í 121 stig og tóku þar við yfirburðasessi Landsbankans, en Byr sparisjóður fór úr 94 stigum í 99. Hallgrímur Óskarsson, framkvæmdastjóri Fortuna, segir nokkra þætti geta spilað inn í viðhorf til bankanna og mögulega skýrt mun á trausti sem fólk ber til gömlu bankanna. Þannig hafi bæði gamli Landsbankinn og Kaupþing verið áberandi í umræðunni vegna margvíslegra mála, svo sem Icesave, lána til starfsfólks Kaupþings og fleiri mála, meðan mun minna hafi farið fyrir Íslandsbanka í umræðunni. Mæling ímyndarvísitölu fjármálafyrirtækjanna er mjög ítarleg, en hún nær yfir meira en 20 þætti, en hluta þeirra má sjá hér til hliðar. Hin síðari ár, allt frá byrjun mælingarinnar, hafa nokkrir þættir verið mjög ráðandi í huga fólks þegar kemur að mótun viðhorfa gagnvart bönkum og sparisjóðum. Til dæmis hefur verið talið mjög mikilvægt að fyrirtækin stæðu sig vel í liðnum sem nefndur er „Gengur vel í uppbyggingu og útrás". Þannig hefur í gegnum tíðina verið nauðsynlegt fyrir fjármálafyrirtækin að leggja allnokkra áherslu á að vera í uppbyggingu og útrás ef viðhorf fólks áttu að vera jákvæð. Þessi staða er gjörbreytt samkvæmt nýjustu mælingu Fortuna. Að „ganga vel í uppbyggingu og útrás" er þó enn til staðar sem áhrifaþáttur í mótun viðhorfa til fyrirtækjanna, en núna er hann sá þáttur sem minnst vægi hefur. Þá kemur fram að mældur munur á milli „stóru" bankanna þriggja reynist vera mjög lítill. Fólk lítur þannig á að þeir séu einfaldlega „í sömu sporum" að mestu leyti, þótt munur sé mælanlegur í einhverjum tilvikum. Viðhorf til „stóru" bankanna þriggja sem „Fyrsti valkostur" á markaði hefur til dæmis gjörbreyst, og sparisjóðirnir aukið við forskot sitt í þeim efnum. Í þessari mælingu datt Landsbankinn úr 94 stigum í 76, Íslandsbanki úr 89 í 77 og Kaupþing úr 85 í 73 stig. Byr sparisjóður fer úr 114 stigum í 110, en sparisjóðirnir sem heild bæta töluvert við sig og fara úr 117 stigum í 127. Þá segir í skýrslu Fortuna að MP-banki mælist líka sterkt, miðað við að vera nýr á viðskiptabankamarkaði.
Undir smásjánni Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Fleiri fréttir „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Sjá meira