Hamar vann deildarmeistara KR örugglega í DHL-höllinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2010 17:26 Það var hart barist í DHL-höllinni í kvöld. Mynd/Stefán
Hamar vann þrettán stiga sigur á deildarmeisturum KR, 92-79, í fyrsta leiknum um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna en spilaði var í DHl-höllinni, heimavelli KR. Kristrún Sigurjónsdóttir átti frábæran leik með Hamar, skoraði 27 stig og gaf 7 stoðsendingar. Hamarskonur lögðu grunninn að sigrinum með frábærum þriðja leikhluta sem liðið vann 20-9 og komst þar með þrettán stigum yfir fyrir lokaleikhlutann. KR náði aldrei að brúa það bil og það hjálpaði ekki til að stóru leikmenn liðsins voru allir í miklum villuvandræðum. Kristrún Sigurjónsdóttir átti eins og áður sagði frábæran leik en annars voru margir leikmenn að spila vel í Hamarsliðinu enda var liðið að skora 92 stig á að margra mati besta varnarlið deildarinnar. Sigrún Ámundadóttir var með 18 stig, Julia Demirer var með 16 stig og 13 fráköst og Guðbjörg Sverrisdóttir bætti við 14 stigum, 7 fráköstum og 5 stoðsendingum af bekknum. Unnur Tara Jónsdóttir skoraði 20 stig fyrir KR og Jenny Pfeiffer Finora var með 16 stig. KR-Hamar 79-92 (49-51) Stig KR: Unnur Tara Jónsdóttir 20 (5 fráköst), Jenny Pfeiffer-Finora 16, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 14 (4 fráköst), Margrét Kara Sturludóttir 10 (6 fráköst, 3 varin skot), Signý Hermannsdóttir 7 (5 fráköst, 4 varin skot), Hildur Sigurðardóttir 6 (5 stoðsendingar), Heiðrún Kristmundsdóttir 4, Helga Einarsdóttir 1, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 1Stig Hamars: Kristrún Sigurjónsdóttir 27(4 fráköst, 7 stoðsendingar), Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 18 (9 fráköst), Julia Demirer 16 (13 fráköst, 6 stoðsendingar, 3 varin skot), Guðbjörg Sverrisdóttir 14 (7 fráköst, 5 stoðsendingar), Fanney Lind Guðmundsdóttir 9 (4 fráköst), Íris Ásgeirsdóttir 4, Koren Schram 2, Hafrún Hálfdánardóttir 2 (5 fráköst).
Dominos-deild kvenna Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Sjá meira