Draumabyrjun Stólanna dugði skammt í DHL-höllinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2010 20:52 Brynjar Þór Björnsson skoraði 24 stig í kvöld.
KR vann 19 stiga sigur á Tindastól, 107-88, í Iceland Express deild karla í DHL-höllinni í kvöld. Tindastóll komst í 24-9 í fyrsta leikhluta en KR-ingar unnu upp muninn í öðrum leikhlutanum og stungu síðan af með því að vinna þriðja leikhlutann 37-16. Brynjar Þór Björnsson skoraði 24 stig fyrir KR og Hreggvður Magnússon var með 22 stig. Pavel Ermolinskij vantaði aðeins eitt stig í þrennuna en hann var með 9 stig, 15 fráköst og 12 stoðsendingar. sean Cunningham skoraði 20 stig fyrir Tindastól og Dragoljub Kitanovic var með 16 stig. Tindastólsliðið var búið að vinna þrjá leiki í röð í deild og bikar og byrjaði af miklum krafti. Stólarnir komust í 24-9 og voru 24-11 yfir eftir fyrsta leikhlutann. KR náði að minnka muninn í 37-42 fyrir hálfleik og Brynjar Björrnsson fór síðan í gangí þriðja leikhlutanum og sá til þess með sínum sextán stigum að KR var komið í 74-58 fyrir lokaleikhlutann. KR-ingar hafa nú unnið alla fimm heimaleiki sína á tímabilinu og ennfremur þrjá síðustu leiki sína í deildinni. Liðið er í 2. til 3. sæti ásamt Grindavík en Grindvíkingar eiga leik inni á morgun.KR-Tindastóll 107-88 (37-42)Stig KR: Brynjar Þór Björnsson 24, Hreggviður Magnússon 22, Marcus Walker 17, Ólafur Már Ægisson 13, Finnur Atli Magnússon 9, Pavel Ermolinskij 9 (15 frák./12 stoðs.), Matthías Orri Sigurðarson 6, Fannar Ólafsson 3, Jón Orri Kristjánsson 2, Martin Hermannsson 2.Stig Tindastóls: Sean Cunningham 20 (8 frák./5 stoðs.), Dragoljub Kitanovic 16 (8 frák./7 stolnir), Friðrik Hreinsson 12, Helgi Rafn Viggósson 8, Helgi Freyr Margeirsson 7, Hayward Fain 7, Einar Bjarni Einarsson 6, Hreinn Gunnar Birgisson 5, Þorbergur Ólafsson 3, Halldór Halldórsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Sjá meira