En í tískuheiminum þekkist það sömuleiðis að eiga sér glæsilega endurkomu og annað líf.
Carven er gott dæmi um hátískuhús sem mátti muna sinn fífil fegri en Madame Carven vildi ekki setja sköpunarverk sitt í hendurnar á einhverjum öðrum þegar hún hætti en þetta tískuhús hefur nú í nokkur misseri verið endurlífgað með góðum árangri. Dior er einnig gott dæmi um endurkomu.
Í byrjun tuttugustu aldar var Jeanne Lanvin einn fínasti hönnuður samtímans í hátískunni í París og braut blað í kvenfatnaði til dæmis með hinu fræga jersey-efni í buxum og kjólum. Hún var einnig ein sú fyrsta í þessum geira að blanda ilmvatn með sínu nafni.
Með árunum dofnaði þó yfir Lanvin og má segja að ekki hafi lengur staðið steinn yfir steini hjá Lanvin þegar Alber Elbaz tók við hönnuninni fyrir nokkrum árum. Síðan hefur leiðin legið upp á við hjá Lanvin og þykir fátt fínna síðustu ár en hönnun Albers Elbaz en nú heldur Lanvin innreið sína á Ítalíu og opnar í Mílanó og Róm.

Þeir bera að sjálfsögðu sérkenni bæði tískuhúss Lanvin og stjórnandans, Albers Elbez. Til dæmis má nefna stórrósótta kjóla í svörtu og rauðu, með fellingum að ofan og neðan. Svo eru það stórglæsilegir svartir kvöldkjólar með púffermum og slaufum og ekki má heldur gleyma herrajakkafötunum, smókingskyrtum og blazer-jökkum.
Öll herlegheitin á afskaplega hóflegu verði sem aðeins er brot af því sem flík frá Lanvin kostar. Flestir kjólarnir eru á um 150 evrur en finnast þó á 100 evrur. Hjá Lanvin getur byrjunarverðið hæglega verið um 2.000-3.000 evrur.

Líklegt að sama verði uppi á teningnum að þessu sinni því hver vill ekki lítinn svartan kjól frá Alber Elbez fyrir jólin og það á gjafverði?
bergb75@free.fr