Skoðun

Ríkis­stjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustu­fyrir­tæki á Gull­hringnum í gjald­þrot!

Helgi Kjartansson og Ásta Stefánsdóttir skrifa

Fjármálaráðherra hélt opinn fund á Selfossi sunnudaginn 1. nóvember. Á fundinum fékkst staðfesting á því að markmið með álagningu náttúru- og innviðagjalds á þrjá ferðamannastaði í Bláskógabyggð, Þingvelli, Gullfoss og Geysi, sé að fækka ferðamönnum á Gullna hringnum. Á hvað vegferð er ríkisstjórnin með slíkum aðgerðum?

Gullni hringurinn, sem ferðamannaleið, var upphaflega fyrst og fremst tekjulind fyrir ferðaþjónustu í Reykjavík, þar sem ferðamenn gistu og neyttu matar, leigðu bíl eða keyptu sér rútumiða og fóru í dagsferðir um uppsveitir Árnessýslu. Dugmiklu fólki, sem hafði kjark og þor til að skapa störf við Gullna hringinn, hefur tekist að breyta þessu mynstri að nokkru leyti, með því að byggja upp afþreyingu, veitingaþjónustu og gistingu á svæðinu og fá þar með ferðamenn til að staldra lengur við. Það hefur skapað vöxt á svæðinu, aukin lífsgæði, fjölgun íbúa, húsnæðisuppbyggingu, fjárfestingu í innviðum og störf af ýmsu tagi, svo fátt eitt sé talið.

Áform um að fækka ferðamönnum á svæðinu koma sem blaut tuska í andlitið á íbúum, eigendum fyrirtækja og stjórnendum sveitarfélaganna. Í Bláskógabyggð eru fjölmörg lítil fjölskyldufyrirtæki sem hafa byggst upp á síðustu árum. Í Bláskógabyggð koma 40% atvinnutekna úr ferðaþjónustu. Ljóst er að samdráttur mun fækka störfum, minnka tekjur fyrirtækja og draga úr útsvarstekjum sveitarfélaganna á svæðinu. Fólk mun missa vinnuna. Fyrirtæki munu verða gjaldþrota. Samdráttur í tekjum sveitarfélagsins leiðir til þess að draga þarf saman í rekstri og möguleikar til fjárfestingar og uppbyggingar minnkar.

Þeir þrír staðir sem gjaldtakan beinist að eru staðir sem geta tekið við auknum fjölda ferðamanna. Þar hefur átt sér stað uppbygging, bæði fyrir tilstilli einkaaðila og ríkisins, sem gerir það að verkum að staðirnir þola talsvert margar heimsóknir. Allir eru þeir þannig staðsettir að íbúar finna ekki mikið fyrir ferðamannafjöldanum. Allir geta þeir tekið við fleiri gestum, en þá ákveður ríkisstjórnin að það sé betra að senda ferðamennina annað. Senda þá á svæði sem eru ekki jafn vel í stakk búin til að taka við gestunum. Staði þar sem uppbygging innviða hefur enn ekki átt sér stað. Staði þar sem t.d. vetrarþjónusta á vegum er í enn verra horfi en á Suðurlandi.

Hvaða skynsemi er í þessu? Hvers vegna er verið að refsa þeim sem hafa lagt allt undir? Hvaða hag hefur ríkissjóður af því að endurdreifa ferðamönnum um landið? Ekki skapar það auknar tekjur ef ferðamönnum fjölgar ekki og leggja þarf fjármagn í uppbyggingu annarra svæða. Farsæl dreifing ferðamanna fæst með því að skapa fleiri segla, staði sem fólk vill heimsækja, ekki með því að hrekja fólk úr einum stað í annan.

Við skorum á þingmenn Suðurkjördæmis að láta málið til sín taka og stöðva þessa aðför að landshlutanum.

Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar

Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar




Skoðun

Sjá meira


×