Sést henda hnífnum í sjóinn 23. október 2010 09:28 Gunnar Rúnar Sigurþórsson
Myndband sem sýnir Gunnar Rúnar Sigurþórsson henda hnífi í smábátahöfnina í Hafnarfirði er meðal rannsóknargagna vegna manndrápsins í Hafnarfirði í ágúst. Hann mun þá hafa verið að koma beint af heimili Hannesar Þórs Helgasonar eftir að hafa orðið honum að bana. Myndbandið er úr eftirlitsmyndavél við höfnina. Gunnar Rúnar var úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness til 19. nóvember í gær. Guðrún S. Arnardóttir, lögmaður Gunnars Rúnars sagði í gær að endanleg niðurstaða úr lífsýnum, sem send hefðu verið til Svíþjóðar, lægi enn ekki fyrir. Einnig segir hún beðið eftir niðurstöðu geðrannsóknar, svo og krufningaskýrslunnar. Hvort tveggja þyrfti að kynna fyrir Gunnari Þór. Fyrr sé ekki hægt að ljúka rannsókn. Gunnar Þór hefur játað að hafa orðið Hannesi Þór að bana. Hann var yfirheyrður af lögreglu skömmu eftir að Hannes fannst látinn en var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Hann gekk laus í tæplega tíu daga, en var handtekinn aftur og úrskurðaður í gæsluvarðhald 27. ágúst. Lögreglan lagði hald á skó Gunnars Rúnars í fyrra skiptið sem hann var handtekinn. Í ljós kom að reynt hafði verið að þrífa blóð af þeim. Þá passaði skófarið við skófar sem fannst á heimili Hannesar eftir að honum hafði verið ráðinn bani. jss-
Morðið á Hannesi Þór Helgasyni Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Fleiri fréttir Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Sjá meira