Innlent

Jón Gnarr lætur af vara­for­mennsku og tveimur varasætum

Birgir Olgeirsson skrifar
Jón Gnarr í sæti sínu á meðan þingforseti tilkynnir breytinguna. Hann steig í framhaldi í pontu Alþingis og áréttaði afsögn úr þingflokknum.
Jón Gnarr í sæti sínu á meðan þingforseti tilkynnir breytinguna. Hann steig í framhaldi í pontu Alþingis og áréttaði afsögn úr þingflokknum. Vísir/Anton Brink

Nýr fyrsti varaformaður hefur verið kosinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í stað Jóns Gnarr. Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar, tekur við embættinu en Jón situr áfram í nefndinni sem almennur nefndarmaður.

Forseti Alþingis tilkynnti við upphaf þingfundar í dag að Eiríkur Björn hefði verið kosinn á fundi nefndarinnar í morgun.

Breytingin kemur í kjölfar úrsagnar Jóns úr þingflokki Viðreisnar 15. október. Sama dag skrifuðu Jón og Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, undir samstarfssamning um áframhaldandi samstarf á Alþingi.

Samdi um að sitja sem almennur nefndarmaður

Í samningnum er sérstaklega tekið fram að Jón haldi sæti sínu í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem almennur nefndarmaður.

„Þingflokkur Viðreisnar og Jón Gnarr sammælast um að Jón sitji áfram í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sem almennur nefndarmaður.“

Þá kveður samningurinn á um að Jón eigi áfram sæti í Þingvallanefnd og gegni formennsku í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins. Skipti á fyrsta varaformanni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar samræmast því ákvæðinu um áframhaldandi setu hans í nefndinni.

Sandra tekur við tveimur varasætum

Í gær tilkynnti forseti Alþingis einnig að Sandra Sigurðardóttir tæki við af Jóni sem varamaður í utanríkismálanefnd og Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um Norðurskautsmál.

Hvorugt þessara varasæta er nefnt í samstarfssamningi Jóns og Viðreisnar.

 Samningurinn felur því ekki í sér að Jón haldi öllum þeim nefndarstörfum sem hann gegndi áður en hann yfirgaf þingflokkinn.

Sandra tekur jafnframt sæti aðalmanns í fjárlaganefnd í stað Ingvars Þóroddssonar, sem verður þar varamaður. Ingvar tekur á móti sæti Söndru sem aðalmaður í velferðarnefnd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×