Halda Harry Potter hlutverkaleik 2. desember 2010 10:30 tilbúnir í galdraslag Þeir Ólafur Sverrir og Kristján Karl vonast eftir því að sem flestir geti mætt í Harry Potter hlutverkaleikinn á föstudaginn.fréttablaðið/gva „
Við gerðum þetta í fyrra og þá vorum við þrír. Við ætlum að reyna að gera þetta aftur núna og fá vonandi fleiri til að vera með,“ segir Ólafur Sverrir Guðmundsson, en hann og vinur hans, Kristján Karl, ætla að halda Harry Potter hlutverkaleik á föstudaginn. Hlutverkaleikir sem þessir kallast á enskri tungu „larp“ en það er stytting á orðunum „live action role-playing“. Fjölmargir hafa staðfest komu sína, en Ólafur og Kristján skráðu atburðinn á Facebook. „Upphaflega hugsunin var sú að engir tveir mættu vera í sama hlutverki, en ef mjög margir mæta eru ekki nógu margar persónur fyrir alla svo fólk má í rauninni vera hver sem er,“ segir Ólafur. Hann bætir þó við að enginn megi vera Voldemort því hann sé of máttugur. Hann segir þá Kristján vera búna að ákveða sín hlutverk. „Ég ætla að vera Cedric Diggory og Kristján verður sjálfur Harry Potter.“ Þeir félagarnir héldu svipaðan hlutverkaleik í fyrra. „Við vorum með Pokémon-þema síðast. Þá vorum við samt bara þrír,“ segir Ólafur en bætir við að það hafi heppnast stórkostlega og því langi þá að endurtaka leikinn. „Við ætluðum að útbúa fullt af sprotum sem fólk gæti fengið hjá okkur, en ég efast um að við náum að gera mjög marga sprota. Það er líka bara hægt að nota greinar eða eitthvað,“ segir Ólafur. Hlutverkaleikurinn fer fram á föstudaginn klukkan átta og verður haldinn fyrir aftan Miðbæ á Háaleitisbrautinni. „Við hvetjum alla til að mæta. Við ætlum allavega bara að fíflast og fá okkur bjór,“ segir Ólafur.- ka
Lífið Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira