Lífið

Sahara Ray látin

Agnar Már Másson skrifar
Ray var fyrrverandi kærasta Justins Bieber.
Ray var fyrrverandi kærasta Justins Bieber. Getty

Fyrirsætan Sahara Ray er látin aðeins 34 ára að aldri. Árið 2016 rataði hún í kastljósi fjölmiðla vegna ástarsambands með poppstjörnunni Justin Bieber.

TMZ greinir frá þessu. Aðstandendur Ray segja hana hafa fallið frá í gær. Hún hafi verið í faðmi fjölskyldu. Dánarorsök liggur ekki fyrir.

Ray varð fræg fyrirsæta og öðlaðist miklar vinsældir á samfélagsmiðlum. Hún átti einnig sundfatalínuna Sahara Ray Swim.

 Árið 2024 opnaði hún sig um baráttu sína við Guillain-Barré heilkennið en það er sjaldgæfur taugasjúkdómur sem hún hlaut eftir alvarlegt bílslys sem olli því að hún lamaðist að hluta. 

Hún rataði í fréttir árið 2016 þegar hún náðist á mynd með Justin Bieber í fríi á Havaí. Hún var áður í sambandi með ásströlsku poppstjörnunni Cody Simons. Ray var dóttir brimbrettakempunnar Tony Ray og varði miklum hluta æsku sinnar á flakki milli Ástralíu, Kaliforníu og Havaí, að því er TMZ greinir frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.