Tæknilandið Ísland Ólafur Þ. Stephensen skrifar 5. júní 2010 10:41 „Það er eitthvað skrýtið við samfélag sem vantar fólk í vinnu en er með marga á atvinnuleysisskrá," sagði Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Marorku, í samtali við Markaðinn, sérblað Fréttablaðsins um viðskipti, síðastliðinn miðvikudag.Þar átti hann við að mörg fyrirtæki á sviði tækni og hönnunar vantar þjálfað starfsfólk sem er ekki til á íslenzkum vinnumarkaði. Jón Ágúst segir eitt til tvö þúsund störf verða til á ári í hugverkaiðnaðinum sem nú standi undir fimmtungi af útflutningstekjum þjóðarinnar. Þar er átt við fyrirtæki eins og Marorku, Marel, Össur og mörg fleiri sem ganga vel og vaxa þrátt fyrir kreppu.Jón Ágúst bendir á að 28 milljörðum króna sé nú varið í atvinnuleysisbætur. Hann leggur til að peningunum verði að hluta til varið í að endurþjálfa fólk á atvinnuleysisskrá, þannig að hægt sé að koma því í ný störf í tækniiðnaði. Hann segir að hér sé að verða grundvallarbreyting; Ísland sé að breytast úr landi frumframleiðslu í sjávarútvegi og landbúnaði í tækniland.Í alþjóðlegum samanburði, sem einnig var birtur í Markaðnum á miðvikudaginn, kemur fram að Ísland er aftarlega á merinni meðal Vesturlanda hvað varðar hlutfall ungs fólks, sem menntað er í stærðfræði, vísindum og verkfræði. Svo aftur sé tekið dæmi af Danmörku, er hlutfallið þar rúmlega 16 prósent, en hér er það um tíu prósent.Jón Ágúst bendir líka á að á íslenzkum vinnumarkaði sé mikið af fólki með grunnþekkingu í atvinnulífi sem er að hverfa og á þar við landbúnað og sjávarútveg. Þetta eru greinar sem áfram munu skipta máli en vaxa klárlega miklu hægar en tækni- og hönnunargeirinn.Námsframboð í framhalds- og háskólum verður að fylgja áherzlum atvinnulífsins og stjórnvalda. Þetta er eitt af því sem þarf að hafa í huga þegar stjórnvöld forgangsraða í menntamálum, sem nú er óhjákvæmilegt. Það væri til dæmis lítið vit í því nú, þegar umfangsmikill niðurskurður stendur fyrir dyrum í ríkiskerfinu, að leggja megináherzlu á að mennta fólk til að vinna hjá ríkinu. En þeim mun meira vit í að efla greinar sem mennta fólk til að starfa í sprotafyrirtækjum á sviði tækni og hönnunar - sem stjórnvöld segjast vilja styðja.Samvinna menntakerfis og atvinnulífs verður að koma til, eigi fyrirtækin að fá fólk með menntun sem nýtist þeim. Endurmenntun fólks á atvinnuleysisskrá, sem Jón Ágúst leggur til, getur verið algjört lykilatriði til að draga úr atvinnuleysi, um leið og komið er til móts við þarfir atvinnulífsins. Hvorki hinar hefðbundnu framleiðslugreinar né hið opinbera munu skapa flest ný störf á komandi árum. Það verður tækni-, þekkingar- og hugverkaiðnaður sem verður vaxtarbroddurinn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Mest lesið Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir Skoðun
„
Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson Skoðun
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir Skoðun