Skoðun

Ættar­nöfn í nýju ljósi: á­lit um­boðs­manns Al­þingis

Marteinn Jónasson skrifar

Umboðsmaður Alþingis birti 22. júlí 2026 álit sem skiptir máli fyrir alla þá sem vilja bera ættarnafn án þess að eiga til þess sjálfkrafa rétt.

Hver á rétt á ættarnafni?

Samkvæmt 5. mgr. 8. gr. mannanafnalaga nr. 45/1996 má maður sem bar ættarnafn samkvæmt þjóðskrá við gildistöku laganna, eða í gildistíð eldri laga nr. 37/1991, bera það áfram. Sama gildir um niðja hans. Rétturinn byggist því á tvennu: umsækjandi þarf að vera niðji nafnberans og nafnið þarf að hafa verið skráð fyrir gildistöku laganna því 7. mgr. 8. gr. bannar fortakslaust að ný ættarnöfn séu tekin upp hér á landi.

Málið

Kona vildi taka upp ættarnafn móðurömmu sinnar, sem hafði alið hana upp en amman lést árið 1990. Þar sem hún lést áður en lögin frá 1991 tóku gildi átti konan ekki rétt á nafninu samkvæmt 5. mgr. og Þjóðskrá því synjaði umsókninni og ráðuneytið staðfesti synjunina. Ráðuneytið taldi jafnframt að 16. gr. laganna, sem heimilar nýtt kenninafn ef gildar ástæður mæla með því, tæki ekki til ættarnafna.

Nafn er líka menning

Nöfn eru ekki bara spurning um tungumál heldur hluti af menningu og sögu fjölskyldna. Ættarnöfn eru í eðli sínu ekkert síður íslensk en föður- og móðurnöfn, og mörg þeirra eru af íslenskum rótum. Fyrir konuna í málinu snerist ættarnafn ömmunnar ekki um málfræði heldur um sjálfsmynd hennar og tengsl við þann sem ól hana upp, en það er einmitt þessi persónulegi þáttur sem umboðsmaður lagði áherslu á í áliti sínu.

Niðurstaða umboðsmanns

Umboðsmaður var ósammála ráðuneytinu. Ættarnöfn eru kenninöfn líkt og eftirnöfn þar sem einstaklingur kennir sig til móður eða föður og ákvæði 16. gr. mannanafnalaga útilokar þau ekki. Hefði ráðuneytið rétt fyrir sér þá “ … væri matskennd undantekningarregla 16. gr. að verulegu leyti þýðingarlaus hvað ættarnöfn snerti og í mótsögn við orðalag ákvæðisins, enda hefði sá sem uppfyllti skilyrði 5. mgr. 8. gr. þegar rétt til nafnsins á þeim grundvelli”. Ákvæði 7. mgr. 8. gr. um bann við upptöku nýrra ættarnafna stendur þó óhaggað. Þjóðskrá ber því að meta í hverju einstöku tilfelli hvort gildar ástæður séu fyrir hendi um upptöku ættarnafns í viðkomandi máli.

Hvað þýðir þetta fyrir almenning?

Ekki dugar lengur fyrir Þjóðskrá að synja umsókn eingöngu á þeirri forsendu að ættartengsl vanti í skilningi 5. mgr. 8. gr. Álitið er þó ekki opin heimild. Matið er áfram í höndum Þjóðskrár, kröfur til ástæðna umsækjandans fyrir því að taka upp ættarnafnið eru nokkuð ríkar og umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Sterk og vel rökstudd persónuleg tengsl við nafnið, eins og í þessu máli, geta átt þar heima. Rökstuðningur skiptir sköpum og margir kjósa að fá lögfræðilega aðstoð við að setja hann fram.

Hvernig Þjóðskrá beitir álitinu í reynd kemur í ljós á næstu misserum. Þeir sem hafa fengið synjun um upptöku ættarnafns eða hafa hug á að leita eftir upptöku ættarnafns ættu að kanna stöðu sína og undirbúa umsóknina eða endurupptökubeiðnina vel.

Höfundur er lögmaður hjá Lögmönnum Granda.




Skoðun

Sjá meira


×