Ólíklegt að það gjósi víðar við Eyjafjallajökul Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. mars 2010 09:57 Eldgosið er mikið sjónarspil. Mynd/ Vilhelm.
Litlar líkur eru á því að eldgos verði annarsstaðar við Eyjafjallajökul, segir almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Þetta var niðurstaða fundar almannavarnanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu með almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og vísindamönnum í gær. Eyjafjallajökull verður áfram lokaður fyrir umferð. Ákveðið var að aflétta lokun sem verið hefur á umferð inn í Þórsmörk og verður vegurinn þangað opnaður í hádeginu. Vegagerðin lagfærði veginn um helgina en hann er engu að síður aðeins fær breyttum jeppum og öflugum rútum. Öll umferð fólks um Hrunagil og Hvannárgil, þar sem hraun rennur niður, er bönnuð vegna hættu á eitruðu gasi sem þar kann að safnast fyrir og vegna hættu á gufusprengingum. Vísindastofnanir hafa bannað sínu fólki að fara inn í gilin vegna þessarar hættu. Ástand gönguleiða í Þórsmörk er breytilegt og eru þeir sem hyggja á göngu þaðan hvattir til að setja sig í samband við staðarhaldara í skálum sem þar eru áður en lagt er af stað. Lögregla og björgunarsveitir verða með eftirlit og gæslu í Þórsmörk og við eldstöðina.
Eldgos og jarðhræringar Gos á Fimmvörðuhálsi Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Sjá meira