Goðsögn hættir hjá Vogue 21. desember 2010 11:00 Glæsileg Roitfeld er ávallt glæsileg til fara og fylgist vel og vandlega með tískunni. Nordicphotos/getty
Carine Roitfeld, ritstjóri franska Vogue, mun láta af störfum í lok janúar á næsta ári. Hún hefur gegnt starfinu frá því árið 2001. Goðsögnin Carine Roitfeld er fædd í París árið 1954 og hóf feril sinn innan tískuheimsins sem fyrirsæta átján ára gömul. Auk starfsins hjá franska Vogue hefur Roitfeld starfað sem blaðamaður og stílisti hjá franska Elle og sem sjálfstætt starfandi stílisti. Roitfeld vann lengi með ljósmyndaranum Mario Testino, en hann er meðal annars frægur fyrir ljósmyndir sínar af Díönu prinsessu. Saman unnu þau meðal annars að auglýsingaherferðum fyrir tískuhúsið Gucci á tíunda áratugnum og að tískuþáttum fyrir bandaríska og franska Vogue. Roitfeld var lengi sérlegur ráðgjafi hönnuðarins Tom Ford og vilja sumir meina að þau ætli að endurvekja samstarf sitt nú í byrjun næsta árs en það hefur þó ekki fengist staðfest. Roitfeld hefur þó viðurkennt að hún ætli að einbeita sér að persónulegum verkefnum þegar hún hefur lokið störfum hjá Vogue. Enn hefur enginn verið nefndur sem mögulegur arftaki Roitfeld hjá Vogue en það verður án efa erfitt að fylla það skarð enda er Roitfeld orðin hálfgerð goðsögn innan tískubransans. sara@frettabladid.is
Lífið Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira