Efast um lögmæti landsdóms 19. apríl 2010 06:45 Sigurður Líndal
Vafi leikur á hvort landsdómur standist Mannréttindasáttmála Evrópu. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, benti á í grein á laugardag að samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu verði allir að eiga þess kost að mál þeirra sé tekið fyrir á tveimur dómstigum. „Landsdómur uppfyllir ekki þetta skilyrði. Hann er því ónothæfur,“ skrifar Þorsteinn. Sigurður Líndal lagaprófessor tekur undir að það séu ýmis álitamál um landsdóm sem þurfi að huga að. Hann bendir hins vegar á að í Danmörku sé áþekkur landsdómur og úrskurðum hans sé ekki hægt að áfrýja. Hann bendir á að í svonefndu Tamíla-máli hafi landsdómur dæmt Erik Ninn-Hansen, þáverandi dómsmálaráðherra, í fangelsi. Ninn-Hansen hafi skotið málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu en því hafi verið vísað frá og dómurinn því staðið. Sigurður tekur hins vegar fram að hann hafi ekki náð að kynna sér úrskurð Mannréttindadómstólsins til hlítar og geti því ekki fullyrt um fordæmisgildi málsins. Sigurður tekur ekki jafn djúpt á árinni og Þorsteinn um að landsdómur sé ónothæfur. Hann segir að hugsanlega væri að hægt setja á laggirnar yfirrétt sem hægt væri að áfrýja til. „Einnig eru tiltölulega rúmar heimildir til endurupptöku mála fyrir landsdómi og það gæti mögulega bjargað þessu fyrir horn. En í öllu falli er ljóst að það þarf að leggjast yfir þetta áður en landsdómur er kallaður saman.“ - bs
Landsdómur Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira