Skoðun

Þingmannanefndin féll á prófinu

Helga Vala Helgadóttir skrifar
Þingmannanefnd Alþingis kolféll á prófinu. Nefndin er þríklofin. Klofningurinn fer algjörlega í einu og öllu eftir flokkspólitískum línum. Vinstri græn, Framsókn og Hreyfing vilja draga fjóra fyrrum ráðherra fyrir Landsdóminn. Báðir þingmenn Samfylkingar vilja undanskilja fyrrum bankamálaráðherrann, Björgvin G. Sigurðsson og þriðji klofningurinn, sem inniheldur báða fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, komst sameiginlega að þeirri niðurstöðu að engan fyrrum ráðherra skuli sækja til saka.

Það er einstaklega ótrúverðugt hvernig nefndarliðar skiptast í lið eftir því hvort þeirra flokkur sat í ríkisstjórn við fall bankanna. Nefndin talar einum rómi þegar kemur að gagnrýni á stjórnsýsluna og eftirlitsstofnanir. Þegar nefndin þarf hins vegar að taka á þeim málum sem snerta flokkana sjálfa splundrast samstaðan og flokkspólitíkin ræður öllu. Hefði skoðun framsóknarþingmanna í nefndinni verið önnur ef hægt væri að ákæra þá ráðherra Framsóknarflokksins sem báru ábyrgð á einkavæðingu bankanna? Hefði skoðun sjálfstæðisþingkvenna verið önnur ef um væri að ræða ákærur á ráðherra núverandi ríkisstjórnar? Fram hefur komið að ekki náðist samstaða í nefndinni um hvort rannsaka þyrfti einkavæðingu bankanna sérstaklega og þar voru það einmitt þingmenn þessara tveggja einkavæðingarflokka sem voru því andsnúnir. Með þessum flokkspólitíska klofningi þingmannanefndarinnar kemur manni fyrir sjónir Alþingi sem hefur ekkert breyst. Hagsmunir flokkanna og sérhagsmunir ráða þar enn ríkjum rétt eins og var fyrir hrun.

Þingmannanefnd Alþingis tók undir þann áfellisdóm yfir stjórnsýslunni og eftirlitsstofnunum sem lesa má í rannsóknarskýrslu Alþingis. Var nefndin sammála um að ýmislegt hefði farið úrskeiðis í aðdraganda bankahrunsins. En Alþingi er ein þessara eftirlitsstofnana sem hafa brugðist stórkostlega og bregst enn. Þingmenn virðast ekki hafa ráðið við þetta verkefni. Með flokksgleraugun á nefinu verður niðurstaðan eins og hún hefur nú birst okkur og traust almennings á störfum Alþingis minnkar í samræmi við getuleysi þingmannanna.

Það æpir á mann að sú aðferð, að þingmenn taki ákvarðanir um ákærur á hendur ráðherrum, er kolröng. Margir gagnrýndu þetta fyrirfram en svona eru lögin. Þeim þarf augljóslega að breyta, en gert er gert, niðurstaða nefndarinnar liggur fyrir. Nú þarf Alþingi að ákveða framhaldið. Hvort það verða þingmenn flokkanna eða þingmenn þjóðarinnar sem greiða atkvæði um þingsályktunartillögurnar á eftir að koma í ljós.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×