Snæfellingar rúlluðu Haukum upp og náðu 4 stiga forskoti á toppnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2011 20:35 Pálmi Freyr Sigurgeirsson. Mynd/Daníel
Snæfell náði fjögurra stiga forskot á toppi Iceland Express deildar karla eftir 42 stiga stórsigur á Haukum, 119-77, í Stykkishólmi í kvöld. Snæfell hefur unnið alla tíu heimaleiki sína í deildinni í vetur og sigurinn í kvöld var aldrei í hættu. Snæfell hefur fjögurra stiga forskot á KR sem á leik inni á móti Tindastól á Sauðárkróki á morgun. Sean Burton fór á kostum í kvöld og var með 29 stig, 11 stoðsendingar og 7 fráköst en Pálmi Freyr Sigurgeirsson skoraði 15 af 20 stigum sínum í fyrri hálfleik og var atkvæðamestur Hólmara á meðan þetta var einhver leikur. Ryan Amaroso lék sinn fyrsta leik síðan 17. janúar og var með 22 stig á 17 mínútum. Gerald Robinson og Semaj Inge voru sem fyrr langatkvæðamestir hjá Haukum, Robinson var með 24 stig og 11 fráköst en Inge skoraði 22 stig. Það var ljóst frá upphafi í hvað stefndi. Snæfell vann fyrsta leikhlutann 28-16 og var komið með 24 stiga forskot í hálfleik, 56-32. Munurinn á liðunum var síðan orðin 28 stig, 83-55, fyrir lokaleikhlutann og í þeim fjórða komu Íslandsmeistararnir muninum síðan upp í 42 stig. Snæfell vann þarna sinn fjórða leik í röð en Haukarnir hafa verið að gefa eftir því strákarnir hans Péturs Ingvarssonar hafa tapað síðustu þremur leikjum sínum í deildinni og féllu að auki út úr undanúrslitum bikarsins. Snæfell-Haukar 119-77 (28-16, 28-16, 27-23, 36-22)Stig Snæfells: Sean Burton 29/7 fráköst/11 stoðsendingar, Ryan Amaroso 21, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 20/4 fráköst/5 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 14/4 fráköst, Emil Þór Jóhannsson 9, Atli Rafn Hreinsson 6, Zeljko Bojovic 6/9 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 5/12 fráköst/7 stoðsendingar, Egill Egilsson 5, Hlynur Hreinsson 2, Daníel A. Kazmi 2.Stig Hauka: Gerald Robinson 24/11 fráköst, Semaj Inge 22/4 fráköst/5 stoðsendingar, Emil Barja 8/4 fráköst, Davíð Páll Hermannsson 8, Sveinn Ómar Sveinsson 8, Haukur Óskarsson 3, Sigurður Þór Einarsson 2, Guðmundur Darri Sigurðsson 2.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira