Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. október 2026 09:02 Vaðið yfir Þröngá í Laugavegshlaupinu. Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Hildur Guðný Káradóttir er ein hlauparanna.
Hildur Guðný er 39 ára landsliðskona í Bakgarðshlaupi. Hún tekur þátt í landsliðakeppninni sem fer fram þann 17. október. Guðjón Ingi hefur mest farið þrjátíu hringi en hlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra á klukkustund, eins oft og hægt er. Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi hefst 17. október og verður í beinni útsendingu á Vísi. Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Árið 2017 var ég í skipulagðri gönguferð yfir Fimmvörðuháls, í þungbúnum gönguskóm með stútfullan bakpoka af hlífðarfötum. Í fyrstu nestispásunni hleypur Elísabet Margeirsdóttir, með stóran hóp í eftirdragi, skyndilega fram hjá. Þau voru öll léttklædd í hlaupaskóm og með pínulítil hlaupavesti á bakinu og ég man að ég hugsaði heilluð „HA, er hægt að hlaupa þessa leið?“ Þá hafði ég ekki hugmynd um hvað utanvegahlaup voru en nokkrum dögum síðar var ég mætt á námskeið hjá Elísabetu og hef ekki hætt að hlaupa síðan. Af hverju ákvaðst þú að taka þátt í Bakgarðshlaupinu? Hvað hefur þú tekið oft þátt? Áður en Bakgarðskeppnin var fyrst formlega haldin á Íslandi tók ég þátt í prufukeppni sem Náttúruhlaup skipulögðu með nokkrum hlaupurum. Þetta var í miðri Covid bylgju og því hljóð hver og einn hlaupari 6,7 km hring í sínum eigin bakgarði og svo hittumst við á Teams á milli hringja til þess að spjalla og hvetja hvort annað áfram. Ég heillaðist strax að Bakgarðshlaupum því ég hef alltaf verið hrifin af þrekraunum sem snúast um að kanna hvar línan liggur og mér finnst ekki mikið um tækifæri til að þjást með þeim hætti í þægindum nútímans. Hildur Guðný eftir Bakgarðshlaup í Heiðmörk. Ég hef tekið þátt í ellefu Bakgarðshlaupum: einu Heimsmeistaramóti með landsliðinu og tíu Bakgarðshlaupum af þeim tólf sem haldin hafa verið á Íslandi. Hvern er best að spjalla við í hringnum? Við Guðjón höfum gengið í gegnum dimma dali saman í keppnum og alltaf náð að toga hvort annað upp, jafnvel þó að við hlaupum oft saman í þögn. Annars fer það svolítið eftir því hvar ég er stödd andlega í keppni, við hvern mér finnst best að spjalla og hvernig orku ég sækist í, sem verður til þess að ég mun líklega eiga gott spjall við þau öll á einhverjum tímapunkti í hlaupinu. Hvað er best að borða þegar þú tekur þátt í Bakgarðinum? Ef ég fengi að ráða væru ferskir ávextir eins og appelsínur, mangó og melónur helst fyrir valinu en til lengri tíma dugir það auðvitað ekki og þá koma sykruðu pönnukökurnar hennar mömmu sér vel. Hildur Guðný keppti fyrir hönd landsliðsins árið 2024. Hvaða liðsmaður er með besta nestið? Ég treysti á að Guðjón mæti með möndluköku með bleiku kremi og geri ráð fyrir að stela af honum nokkrum sneiðum en ég er einnig mjög spennt fyrir því að smakka Cocoa puffs hjá Gumma. Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að hlaupa? Ég starfa hjá KR sem styrktar- og frammistöðuþjálfari fyrir meistaraflokk kvenna í knattspyrnu og hjá Mjölni sem hóptímaþjálfari. Þess fyrir utan ver ég mestum tíma við styrktaræfingar, útivist, ferðalög, bíóferðir, garðyrkju, saunuferðir og að vera með fólkinu mínu. Hvað ætlar þú þér að fara marga hringi í október? Eins marga og líkaminn leyfir mér. Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í í Bakgarðshlaupinu? Ég kann eiginlega ekki að skammast mín svo mér dettur ekkert vandræðalegt í hug. Hver er uppáhalds Bakgarðsbrautin þín og af hverju? Mér finnst mjög erfitt að velja á milli þeirra en ætli Öskjuhlíðin eigi ekki alltaf sérstakan stað í hjarta mínu því að þar fæ ég að fara „heim“ í Mjölni á milli hringja. Hvaða liðsmaður kemur mest á óvart í hlaupinu? Mari kemur mér alltaf á óvart með seiglu sinni. Einnig hefur Friðrik lagt inn mikla vinnu fyrir þessa keppni svo ég hef fulla trú á að hann muni koma á óvart. Mont Blanc með Náttúruhlaupum. Hver er þinn stærsti styrkleiki í Bakgarðshlaupi? En veikleiki? Minn helsti styrkleiki er andlega hliðin vegna þess að það er mér eðlislægt að vera jákvæð og þrautseig og ég nýt þess að vinna mig í gegnum erfiða kafla. Minn helsti veikleiki er að setja mér ekki nægilega háleit markmið og skilja þar af leiðandi ekki allt eftir í brautinni þegar ég hætti. Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert til að halda þér gangandi í hlaupi? Til þess að halda huganum gangandi byrja ég einhverra hluta vegna oft að telja skrefin mín í hljóði þegar ég er farin að þreytast. Þess á milli tala ég nánast stanslaust upphátt við sjálfa mig og sem ljóð í huganum. Til þess að hvíla hugann hef ég nýtt einfalda malbikskaflana til þess að hlaupa með hálfopin augu til þess að plata heilann að hann sé að fá svefn. Ég ábyrgist þá aðferð ekki með neinum hætti. Hver er duglegastur í liðinu við að hvetja aðra áfram? Tómas, það er mjög góð ára í kringum hann því að hann er svo jákvæður, fyndinn og vill öllum vel. Einnig er alltaf hægt að treysta á hvatningu frá Þorleifi enda býr hann yfir mikilli reynslu og góðum ráðum. Ef þú mættir bara hlusta á eitt lag allan tímann, hvaða lag væri það? Ég verðlauna sjálfa mig með því að leyfa mér að hlusta á tónlist þegar ég er komin ákveðið marga hringi og þá verður rapp yfirleitt fyrir valinu á daginn en klassísk tónlist á næturnar. En ef ég mætti bara hlusta á eitt lag allan tímann dettur mér í hug að Wish You Were Here með Pink Floyd gæti reynst vel því að melódían heldur taugunum í jafnvægi og lagið er yfir meðallagi langt. Hvernig myndir þú lýsa þér fyrir einhverjum sem þekkir þig ekki? Barnslega hrifnæm, jákvæð, opin og kann að meta litlu hlutina í lífinu. Hæfilega kærulaus, óþægilega hreinskilin, ákveðin og með sótsvartan húmor. Hvað er best að gera eftir Bakgarðshlaup? Mér finnst best að fara í saunu og göngutúra til að leyfa líkamanum að jafna sig. Svo horfi ég yfirleitt á fullt af bíómyndum þar sem ég á erfitt með svefn fyrstu dagana eftir keppni. Víkingaleikarnir í Mjölni. Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum? Þar veðja ég á sjálfa mig Ef þú ættir að lýsa liðinu með þremur orðum, hvaða orð myndirðu velja? Samansafn litríkra furðufugla
Bakgarðshlaup Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Fleiri fréttir Íslenski landsliðsmaðurinn fékk mynd af sér með skúrkinum Leikur Elíasar færður vegna mótmæla Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Dagskráin í dag: Orri í Belgíu og fjórir leikir í Bónus-deildinni Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sokkunum fórnað og mikil spenna fyrir EM í Finnlandi Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Antonelli getur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar í næstu keppni Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Heimir sagður á leið til ÍA og Martinez óð á súðum Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Eva bætti hvert metið á fætur öðru Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Sjá meira