Handbolti

Gísli marka­hæstur og Bjarki fagnaði stór­sigri

Sindri Sverrisson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk í kvöld.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði sex mörk í kvöld. Getty/Vitalii Kliuiev

Tíu íslensk mörk litu dagsins ljós þegar Magdeburg vann Kielce 30-27 í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Bjarki Már Elísson lét sömuleiðis til sín taka í öruggum sigri PSG gegn Celje í Slóveníu, 41-30.

Gísli Þorgeir Kristjánsson var markahæstur hjá Magdeburg í kvöld með sex mörk og Ómar Ingi Magnússon skoraði fjögur. Elvar Örn Jónsson var hins vegar ekki á meðal markaskorara.

Kielce hafði frumkvæðið í fyrri hálfleik og var marki yfir í hléi, 14-13, en svo komust heimamenn fljótlega yfir og héldu Kielce í 3-4 marka fjarlægð stærstan hluta seinni hálfleiks.

Magdeburg hefur þar með unnið fyrstu þrjá leiki sína og er efst í F-riðli en Kielce er með fjögur stig.

Bjarki með fjögur í stórsigri

Bjarki nýtti skotin sín vel fyrir PSG og skoraði fjögur mörk í sigrinum örugga gegn Celje. PSG var 22-14 yfir í hálfleik og aldrei spurning hvernig færi.

PSG og Álaborg eru því með sjö stig hvort á toppi C-riðils, Zagreb með tvö stig en Celje án stiga.

Díana öflug gegn Leipzig

Í Þýskalandi unnu meistarar Blomberg-Lippe öruggan sigur gegn Leipzig, 32-21, í úrvalsdeild kvenna. Díana Dögg Magnúsdóttir var í stóru hlutverki og skoraði fimm mörk og Elín Rósa Magnúsdóttir eitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×