Handbolti

Þungt tap Íslendingaliðsins

Valur Páll Eiríksson skrifar
Díana Dögg skoraði tvö fyrir Blomberg-Lippe í þungu tapi dagsins.
Díana Dögg skoraði tvö fyrir Blomberg-Lippe í þungu tapi dagsins. Vísir/EPA

Þýskalandsmeistarar Blomberg-Lippe töpuðu stórt fyrir Odense frá Danmörku í Meistaradeild kvenna í handbolta í dag.

Blomberg-Lippe hefur átt í töluverðum vandræðum í Meistaradeildinni það sem af er hausti og ekki batnaði staðan í dag.

Odense var með yfirburði frá upphafi og leiddi með tíu marka mun í hálfleik, 20-10.

Þær dönsku bættu við forystuna eftir hlé og unnu öruggan 35-18 sigur.

Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Blomberg úr fjórum skotum. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði aðeins eitt úr sex skotum og lagði annað upp fyrir þýska liðið.

Odense er eftir sigurinn með fimm stig í riðlinum, fjórum á eftir toppliðum Metz og Györ. Blomberg-Lippe hefur tapað öllum fimm leikjum sínum og er án stiga á botni riðilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×