Ingi Þór: Mjög hissa á úrslitunum í Seljaskóla Jón Júlíus Karlsson skrifar 6. mars 2011 21:37 Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells. Mynd/Daníel „
Ég verð að viðurkenna að þetta kemur mér nokkuð á óvart og er mjög hissa á úrslitunum í Seljaskóla," sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, sem varð deildarmeistari í Iceland Express deild karla í kvöld. Snæfell vann sigur á Hamri á heimavelli, 76-64 á meðan KR tapaði illa fyrir ÍR í Seljaskóla, 125-94. Þar með er ljóst að Snæfell er deildarmeistari. Snæfell lenti í basli með lið Hamars sem er í fallbaráttunni og leiddu gestirnir í hálfleik, 38-39. Í síðari hálfleik náðu heimamenn í Snæfelli að snúa leiknum sér í hag. „Hamar barðist vel og gerði okkur mjög erfitt fyrir. Við gerðum það sem þurfti og ég er mjög ánægður með sigurinn. Áhorfendur voru byrjaðir að kalla stöðuna úr Seljaskóla til okkar og þá lagði ég saman tvo og tvo. Við höfum oft leikið betur en þetta var gott framlag hjá heildinni," sagði Ingi Þór sem þar með hefur unnið alla titla sem eru í boði hér á landi með Snæfelli á undanförnum tveimur árum. „Þetta var síðasta púslið og jafnvel spurning hvort maður segi ekki bara af sér," sagði Ingi Þór léttur að vanda en hann gerði liðið að Íslands- og bikarmeisturum á síðasta ári. Ingi Þór gerði liðið einnig að Lengjubikarmeisturum í haust.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira