Hópslagsmál á Ásvöllum í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2011 21:20 Pétur Ingvarsson, þjálfari Hauka, gæti verið án margra leikmanna í næsta leik.
Það sauð heldur betur upp úr í leik Hauka og KFÍ í lokaumferð Iceland Express deildar karla í körfubolta á Ásvöllum í kvöld. Haukarnir tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni með 88-68 sigri en gætu verið án nokkurra leikmanna í fyrsta leik í úrslitakeppninni á móti Snæfelli því fjórum leikmönnum liðsins var vikið út úr húsi í kvöld og einn leikmaður endaði á sjúkrahúsi. Í upphafi fjórða leikhluta urðu mikil slagsmál sem urðu til þess að sjö leikmönnum liðanna, fjórum leikmönnum Hauka og þremur leikmönnum KFÍ, var hent út úr húsi. Upphafið má rekja til þess að Haukamaðurinn Davíð Páll Hermannsson og KFí-maðurinn Darco Milosevic fóru að slást inn á vellinum. Leikmenn úr báðum liðum fóru inn á völlinn í kjölfarið og dómarar leiksins, þeir Einar Þór Skarphéðinsson og Halldór Geir Jensson, ráku að lokum sjö leikmenn út úr húsi. Haukamennirnir sem voru reknir út voru þeir Davíð Páll Hermannsson, Gerald Robinson, Óskar Ingi Magnússon og Steinar Aronsson, KFÍ-mennirnir Darco Milosevic, Carl Josey og Ingvar Bjarni Viktorsson fengu einnig brottrekstur. Áður en upp úr sauð höfðu Haukar misst bakvörðinn Emil Barja af velli en hann var fluttur upp á sjúkrahús, meiddur á auga. Haukarnir gætu því verið án margra leikmanna í fyrsta leik úrslitakeppninnar þar sem þeir mæta Snæfellingum.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira