Sigurður: Gaman að fá einhvern til að slást við Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. mars 2011 15:30 Sigurður Gunnar Þorsteinsson.
Sigurður Gunnar Þorsteinsson, miðherjinn sterki í liði Keflavíkur, óttast ekki að rimman gegn ÍR í fjórðungsúrslitum Iceland Express-deild karla muni sitja í liðinu þegar það mætir KR í fyrsta leik í undanúrslitum í kvöld. Keflavík vann nauman sigur á ÍR í framlengdum oddaleik liðanna í síðustu viku á meðan að KR fékk nokkurra daga hvíld eftir 2-0 sigur á Njarðvík í sinni rimmu í fjórðungsúrslitunum. „Nei, engan veginn. Við erum búnir að afgreiða hana,“ sagði Sigurður um rimmuna gegn ÍR. „Við gerðum það sem við þurftum að gera - spiluðum vörn og hún vinnur titla.“ Hann á þó von á öðruvísi leikjum í næstu rimmu en þeirri síðustu. „ÍR var ekki með neina stóra menn og þarf ég því að slást við fleiri leikmenn. Keflavík og KR eru líka nokkuð jöfn í flestum stöðum og því er líklegt að þetta verði hörkuleikir og mikil barátta.“ „Ég held að það lið sem sýni meiri baráttu og leikgleði muni vinna þessa seríu. En við förum í alla leik til að vinna og þannig verður það einnig í kvöld.“ „Við vitum vel hvað þarf að gera. Það eru ekki nema þrír leikmenn í hópnum sem hafa ekki orðið Íslandsmeistarar, þar af eru tveir útlendingar. Við vitum hvað þarf til.“ Hann á einnig von á skemmtilegri rimmu við KR-inginn Fannar Ólafsson á báðum endum vallarins. „Ég hef gaman að því og langskemmtilegast að spila þegar maður fær einhvern til að slást við. Vonandi fáum við að gera það, svo lengi sem við göngum ekki yfir strikið.“
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira