Já-hanna! Gerður Kristný skrifar 28. mars 2011 09:01 Á laugardaginn las ég í Fréttablaðinu að mun færri karlmenn hér á landi tækju sér nú feðraorlof eftir efnahagshrunið en áður. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem heitir Konur í kreppu? og er samantekt á opinberum tölulegum gögnum á áhrifum efnahagshrunsins á velferð kvenna. Kannski er þetta rangnefni á skýrslunni því sé til dæmis aðeins niðurstaðan af nýtingu feðraorlofsins athuguð er ekki ólíklegt að leiða megi að því líkur að karlar séu ekki síður en konur í kreppu og þá vitaskuld líka börnin. Við vorum stolt þjóð þegar feðraorlofinu var komið á en það er eins með það og svo margt annað sem þrotlaus jafnréttisbarátta aðeins örfárra þjóðinni til handa hefur komið til leiðar, það þarf ekki mikið til að henni miði af leið. Alltaf kemur það mér samt á óvart hvað jafnréttisumræða ergir marga. Það er stundum eins og verið sé að hefja máls á misréttinu í fyrsta sinn - inni á baðstofugólfinu eftir postillulesturinn - slíkt getur offorsið orðið. Fjölmiðlar stæra sig af því að sýna okkur heiminn eins og hann er en eins og Auður Aðalsteinsdóttir, doktorsnemi í bókmenntum, benti á í merkum hádegisfyrirlestri í Háskóla Íslands á fimmtudaginn mætti halda af fjölmiðlum fyrri tíma að konur hefðu ekki verið til. Af þessum blöðum mætti þá halda að konur væru bara síðari tíma uppfinning - svona eins og snjallsíminn. Í síðustu viku komst kærunefnd jafnréttismála að því að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefði brotið jafnréttislög. Jóhanna var að reyna að gera allt rétt og vildi hafa vaðið fyrir neðan sig. Henni varð það á að hlusta á ráðgjafa sína. Sem betur fer kærði konan sem fannst hún órétti beitt og af þessum mistökum má draga mikilvægan lærdóm. Og vissulega voru þetta mistök. Það er vandlifað og andstæðingar Jóhönnu á þingi ruku upp til handa og fóta og kröfðust afsagnar hennar, fólk sem ég hef aldrei séð beita sér í jafnréttismálum svo nokkru nemi. Það hefur Jóhanna hins vegar gert í gegnum tíðina og komið frumlegustu hugmyndum á koppinn. Það var til dæmis hún, og þá sem félagsmálaráðherra, sem stofnaði karlajafnréttisnefndina sem einmitt barðist hvað mest fyrir feðraorlofinu sem nefnt var hér í upphafi. Engri annarri treysti ég betur fyrir því að voka yfir jafnréttismálunum hér á landi en einmitt henni Jóhönnu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bakþankar Gerður Kristný Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnusta Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun