Formúla 1

Öruggur sigur og örugg forysta hjá Vettel

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sebastian Vettel.
Sebastian Vettel. Mynd/Nordic Photos/Getty
Heimsmeistarinn í formúlu eitt í fyrra, Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull, er hreinlega að stinga af í formúlunni en hann vann tyrkneska kappaksturinn örugglega í dag.

Vettel er því kominn með 34 stiga forskot á Lewis Hamilton í keppni ökumanna en hann er búinn að vinna þrjú af fjórum fyrstu mótum ársins og endaði síðan í öðru sæti í því fjórða.

Þetta var tvöfaldur sigur hjá Red Bull í dag en Vettel var tæpum níu sekúndum á undan félaga sínum Mark Webber. Spánverjinn Fernando Alonso hjá Ferrari kom síðan í 3. sætinu. Lewis Hamilton hjá McLaren varð í 4. sæti en hann var meira 40 sekúndum á eftir Vettel.



Tíu efstu í tyrkneska kappakstrinum:1. S Vettel     Red Bull

2. M Webber    Red Bull

3. F Alonso    Ferrari

4. L Hamilton    McLaren

5. N Rosberg    Mercedes

6. J Button    McLaren

7. N Heidfeld    Renault

8. V Petrov    Renault

9. S Buemi    Toro Rosso

10. K Kobayashi    Sauber

Topp tíu í keppni ökumanna:

1. S Vettel     Red Bull     93

2. L Hamilton     McLaren     59

3. M Webber     Red Bull     55

4. J Button     McLaren     46

5. F Alonso     Ferrari     41

6. F Massa    Ferrari    24

7. V Petrov    Renault    21

8. N Heidfeld    Renault    21

9. N Rosberg    Mercedes 20

10. K Kobayashi    Sauber    8




Fleiri fréttir

Sjá meira


×