Formúla 1

Formúla 1

Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Fréttamynd

Verða fleiri framúrakstrar í Móna­kó?

Formúlu 1-kappaksturinn í Mónakó er um helgina og spennandi að sjá hvort að nýja vélin í bílunum geri þeim kleift að taka fram úr. Mónakó-brautin er þekkt fyrir að vera þröng og hæg sem gerir það erfitt fyrir ökumenn að taka fram úr hvor öðrum.

Formúla 1

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ní­tján ára í hóp með Schumacher og Senna

Það er óhætt að segja að Ítalinn ungi, Kimi Antonelli ökuþór Mercedes, sé að slá í gegn í Formúlu 1 um þessar mundir. Antonelli vann sinn þriðja kappakstur á ferlinum í mótaröðinni í gær. Þann þriðja í röð og stillir sér upp við hlið goðsagna á borð við Michael Schumacher og Ayrton Senna. 

Formúla 1
Fréttamynd

For­múlunni flýtt vegna storms

Formúlu 1-keppni dagsins hefur verið flýtt um þrjár klukkustundir. Keppni dagsins hefst klukkan 17:00 og bein útsending hefst klukkan 16:30 á Sýn Sport Viaplay.

Formúla 1
Fréttamynd

Antonelli fékk færri til­raunir en tók ráspólinn

Kimi Antonelli ökuþór Mercedes verður fyrstur af stað þegar Formúlu 1 kappaksturinn í Miami fer af stað annað kvöld. Max Verstappen fylgir honum fast eftir á Red Bull bílnum og freistar þess að vinna sinn fyrsta sigur á tímabilinu.

Formúla 1
Fréttamynd

Leclerc sneggstur á æfingum

Mónakóinn Charles Leclerc var sneggstur á lokaæfingum ökuþóra í Formúlu 1 á Miami-brautinni í dag fyrir komandi sprettkeppni og tímatökur.

Formúla 1
Fréttamynd

Hægri hönd Verstappens skiptir um lið

Gianpiero Lambiase, keppnisverkfræðingur og hægri hönd formúluökumannsins Max Verstappens til margra ára, er sagður vera á förum frá Formúlu 1-liði Red Bull. Hann er sagður hafa þegið stjarnfræðilegt tilboð frá keppinaut.

Formúla 1
Fréttamynd

Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru

Ítalinn ungi, Kimi Antonelli, ökuþór Mercedes í Formúlu 1 hefur vakið verðskuldaða athygli eftir frábæra byrjun á tímabilinu. Kimi er að slá hvert metið á fætur öðru og gæti orðið yngsti heimsmeistarinn í sögu mótaraðarinnar. 

Formúla 1
Fréttamynd

Undra­barn slær í gegn í For­múlu 1

Ítalska undrabarnið Kimi Antonelli leiðir heimsmeistarakeppni ökuþóra í Formúlu 1 um þessar mundir. Sérfræðingur Íslendinga um Formúlu 1, Bragi Þórðarson, telur Antonelli geta farið alla leið í ár og staðið uppi sem heimsmeistari.

Formúla 1
Fréttamynd

Í­hugar að hætta í For­múlu 1

Max Verstappen hefur sagt að hann íhugi að hætta í Formúlu 1 í lok árs 2026 og viðurkennir að hann „njóti ekki íþróttarinnar“ eftir að hafa endað í áttunda sæti í japanska kappakstrinum um helgina.

Formúla 1