Formúla 1

Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður

Andri Broddason skrifar
Carlos Sainz er ekki sáttur með bílana sem eru á þessu tímabili í Formúlu 1.
Carlos Sainz er ekki sáttur með bílana sem eru á þessu tímabili í Formúlu 1. Paddocker/Getty Images

Klúður er orðið sem lýsir best atvikunum sem gerðust í rigningunni í Bahrein-kappakstrinum í Formúlu 1 um helgina sem var haldinn í Malasíu. Ökumenn náðu varla að keyra vegna bilunar í kerfi bílanna sem tafði að keppnin gæti farið af stað.

Carlos Sainz er fulltrúi ökumanna í Formúlu 1 og segir hann að það þurfi að gera breytingar á kerfinu svo að atvik lík þessu gerist ekki aftur. Hann segir þessa útgáfu bíla hafa verið mistök og að stjórn íþróttarinnar þurfi að passa að slíkt gerist ekki aftur.

„Við erum að gera það besta sem við höfum sem íþrótt. FIA og Formúla 1 eru að gera það besta úr slæmri stöðu. Það er greinilegt að þessi tegund bíla sem var ákveðin fyrir fjórum eða fimm árum var röng. Við sem íþrótt þurfum að passa að gera þessi mistök ekki aftur.“

Alþjóðaakstursíþróttasambandið, FIA, hefur ákveðið að greina það sem gerðist í byrjun keppninnar til þess að koma í veg fyrir að slíkt gerist aftur. Það er skrítið að svona mikill galli komi í ljós svona seint á tímabilinu en lítið hefur rignt á þessu ári og var þessi tegund bíla að keyra í bleytu nánast í fyrsta skipti.

Stjórn Formúlu 1 er að íhuga breytingar fyrir næstu ár til þess að laga bílana þar sem mörgum aðdáendum og ökumönnum finnst íþróttin vera að missa sjarma með þessari tegund bíla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×