Formúla 1

Webber mun berjast við Vettel í mótum

Sebastian Vettel og Mark Webber eru liðsfélagar hjá Red Bull.
Sebastian Vettel og Mark Webber eru liðsfélagar hjá Red Bull. mynd: Getty Images/Bryn Lennon
Christian Horner, yfirmaður Red Bull segir að liðsmenn hans, Sebastian Vettel og Mark Webber muni takast á um sigra í mótum og tvö næstu mótssvæði hafi skilað Webber betri árangri en Vettel í fyrra. Keppt verður á Spáni um aðra helgi og Mónakó viku síðar. Vettel hefur unnið þrjú af fyrstu fjórum mótum ársins, en Lewis Hamilton eitt.





Horner sagði í frétt á autosport.com að Vettel hefði gengið betur en Webber að aðlagast nýju Pirelli dekkjunum sem eru notuð í ár, en Bridgdestone sá liðum fyrir dekkjum í fyrra.



,,Dekkin eru ólík í uppbyggingu. Akstursstíll Seb´s og hvernig hann hefur aðlagað hann dekkjunum hentar betur. Mark er að verða betri og betri með meiri reynslu og það eru að verða umskipti. Ég held við eigum eftir að sjá það í tveimur næstu mótum, sem Webber hefur verið sterkur í ", sagði Horner, en hann vann á Spáni og Mónakó í fyrra.

,,Tímabilið er rétt að byrja. Þeir hafa ekki verið nærri hvor öðrum í mótum, nema hvað þeir færðust nær í tveimur síðustu mótum. Við erum heppnir að hafa svona hæfileikaríka ökumenn innan liðsins", sagði Horner.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×