Formúla 1

Perez tognaður og með heilahristing

Bíll Sergio Perez eftir óhappið í tímatökunni í dag.
Bíll Sergio Perez eftir óhappið í tímatökunni í dag. Mynd: Getty Images/Paul Gilham
Sauber Formúlu 1 liðið sendi frá sér fréttatilkynningu vegna óhapps Formúlu 1 ökumannsins Sergio Perez í tímatökunni í Mónakó í dag. Perez var fluttur á Princess Grace spítalann í Mónakó eftir að hann skall harkalega á varnarvegg í brautinni.

Læknar greindu Perez með heilahristing og hann tognaði einnig á læri. Bíll Perez snerist í brautinni eftir að hann kom á mikilli ferð út úr undirgögnunum í Mónakó.

Perez skall fyrst á vegriði og rann síðan stjórnalaust eftir brautinni og endaði harkalega á hliðarskriði á sérstökum varnarvegg undir lok tímatökunnar. Tók langan tíma að huga að Perez og tímatakan tafðist verulega á meðan hann var fjarlægður út bílnum og síðan fluttur á spítala með sjúkrabíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×