Tónlist

Uppselt á Jamie Cullum - sætin bakvið sviðið notuð í fyrsta sinn

Jamie Cullum.
Jamie Cullum.
Uppselt er á tónleika Jamie Cullum í Hörpu 23. Júní. Skipuleggjandi tónleikanna, hr.Örlygur, hefur í samráði við Jamie og starfsfólk Hörpu ákveðið að setja í sölu miða sem eru á svölum til hliðar við sviðið og einnig fyrir aftan sviðið.

„Það skal tekið fram að þessi sæti eru ekki sambærileg að gæðum og í aðal salnum en bætt verður í hljóðkerfið til að hljómurinn verði sem bestur í þessum sætum," segir í tilkynningu en verðið á sætunum tekur mið af staðsetningunni og er 3500 kr.

„Jamie Cullum er einstaklega léttur og skemmtilegur náungi, hann er þrælánægður með að vera umkringdur áheyrendum á alla kanta og ætlar að setja allt í botn í Hörpu," segir einnig.

Aukamiðarnir eru nú þegar komnir í sölu og þá má nálgast hjá Hörpu og midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×