Formúla 1

Vettel kom fyrstur í mark

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sebastian Vettel fagnar sigrinum í dag.
Sebastian Vettel fagnar sigrinum í dag. Nordic Photos / AFP
Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull hefur tekið afgerandi forystu í stigakeppni ökuþóra í Formúlu 1 eftir sigur í evrópska kappakstrinum sem fór fram í Valencia á Spáni.

Vettel byrjaði fremstur á ráspól og hafði mikla yfirburði í keppninni. Þetta er hans sjötti sigur á tímabilinu og er hann nú með 77 stiga forystu á þá Jenson Button og Mark Webber í stigakeppninni.

Fernando Alonso, Ferrari, varð annar í keppninni í dag og liðsfélagi Vettel hjá Red Bull, Mark Webber, þriðji. Lewis Hamilton, McLaren, varð fjórði og Felipe Massa hjá Ferrari fimmti.

Spánverjinn Jaime Alguersuari náði frábærum árangri fyrir Toro Rosso í dag en hann endaði í áttunda sæti eftir að hafa verið átjándi á ráspólnum.

En maður dagsins er Vettel sem hefur aldrei orðið neðar en í öðru sæti í þeim átta mótum sem er lokið af keppnistímabilinu. Hann er aðeins fjórtán stigum frá því að vera með fullt hús stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×