Viðskipti erlent

Stjórn Pandóru hélt upplýsingum leyndum

Í ljós er komið að stjórn skartgripaframleiðendans Pandóru í Danmörku hélt leyndum viðkvæmum markaðsupplýsingum í uppgjöri sínu fyrir fyrsta ársfjórðung ársins.

Þá hefði stjórnin átt að greina frá því að mikill samdráttur hefði orðið og væri framundan á helstu mörkuðum Pandóru einkum í Bretlandi og Þýskalandi. Þetta gerði stjórnin ekki fyrr en nýlega með þeim afleiðingum að hlutir í Pandóru hröpuðu um 65% á einum degi. Þetta kemur fram í börsen í dag.

Eins og fram hefur komið í fréttum er alls óvíst hvort Seðlabankinn muni endurheimta að fullu söluverð sitt fyrir FIH bankans vegna þess hve illa gengur hjá Pandóru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×