Íslenski boltinn

Niðurlæging í Búdapest

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson í leiknum í kvöld.
Jóhann Berg Guðmundsson í leiknum í kvöld. Nordic Photos / AFP
Ungverjaland vann 4-0 sigur á Íslandi í vináttulandsleik í Búdapest í kvöld. Óhætt er að segja að strákarnir hafi fengið slæma útreið í kvöld en leikurinn var einn sá allra versti undir stjórn Ólafs Jóhannessonar.

Ólafur tók við starfi landsliðsþjálfara í lok árs 2007 en þangað til í kvöld hafði Ísland aldrei fengið á sig fjögur mörk í einum leik undir hans stjórn. Segir það margt um gæði íslenska liðsins í kvöld - þau voru nánast ekki til staðar.

Fyrri hálfleikur var skömminni skárri en sá síðari. Íslendingar náðu á köflum ágætis spili á fyrsta hálftímanum en jafn oft var það klaufalegt og tilviljunakennt.

Ungverjar komust svo yfir á 32. mínútu og fór að halla verulega undan fæti eftir það. Íslensku leikmennirnir gerðu sig seka um klaufaleg mistök hvað eftir annað og kostuðu sum þeirra mörk - önnur ekki. Ungverjar bættu við öðru marki í lok fyrri hálfleiksins og staðan því 2-0 að honum loknum.

Ólafur hefur náð að koma einhverju skipulagi á leik íslenska liðsins í leikhlénu því liðið átti sæmilegan kafla í upphafi síðari hálfleiks. En þegar Ungverjar skoruðu svo þriðja markið datt botninn endanlega úr leik íslenska liðsins. Heimamenn gengu á lagið og yfirburðir þeirra algerir síðasta hálftímann. Að sama skapi var vonleysi Íslendinga algert.

Landsliðið hefur verið í frjálsu falli á styrkleikalista FIFA undanfarin misseri og því miður bar þessi leikur sorglegan vitnisburð um stöðu þess. Ólafur hefur ekki náð miklum árangri með liðið en gat þó í það minnsta borið fyrir sig að liðið hafi verið að spila þokkalega undir hans stjórn.

En það var ekki tilfellið í kvöld. Það var fátt sem benti til framfaraskrefa í leik íslenska liðsins í kvöld og ljóst að breytinga er þörf.

Það eina sem má teljast jákvætt við leikinn er að í honum fengu margir ungir leikmenn að spreyta sig og er óskandi að þeir geti dregið einhvern lærdóm af þeirri reynslu.

Ungverjaland - Ísland 4-0

Dómari: Wolfgang Stark, Þýskalandi.

Skot (á mark): 18–8 (10-1)

Varin skot: Bogdán 1 – Stefán Logi 4

Hornspyrnur: 8–5

Aukaspyrnur fengnar: 13–12

Rangstöður: 3–2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×