Íslenski boltinn

Sigurður Ragnar: Það er enginn ómissandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Edda Garðarsdóttir er meidd og verður ekki með.
Edda Garðarsdóttir er meidd og verður ekki með. Mynd/Valli
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hélt í dag blaðamannafund þar sem að hann fór yfir leikmannahópinn sem hann valdi fyrir komandi leiki við Noreg og Belgíu í undankeppni EM. Mesta athygli vekur að lykilmaðurinn Edda Garðarsdóttir getur ekki spilað þessa leiki vegna meiðsla og að Laufey Ólafsdóttir er komin aftur inn í landsliðið eftir fimm ára fjarveru.

„Það vekur athygli að Edda Garðarsdóttir er ekki í hópnum en hún er með rifinn liðþófa í hné. Hún hefur þegar farið í speglun og verður vonandi búin að ná sér fyrir Október-leikina okkar á móti Norður-Írum og Ungverjum," útskýrði Sigurður Ragnar á fundinum.

„Edda hefur verið lykilmaður hjá okkur og kjölfestan á miðjunni. Hún hefur líka tekið föstu leikatriðin okkar og hefur lagt upp mikið af mörkum eftir aukaspyrnur og hornspyrnur. Við þurfum að finna nýja lausn á því en það er enginn ómissandi en það verður örugglega einhver góður miðjumaður við hliðina á Söru," sagði Sigurður Ragnar.

„Rakel Hönnudóttir sem hefur verið í okkar hópi líka er meidd. Hún er með beinmar á ökkla. Þetta eru einu forföllin sem eru vegna meiðsla en aðrar eru klárar í slaginn," sagði Sigurður Ragnar.

„Það vekur kannski líka athygli að það er nýliði í hópnum þó svo að hún sé ekki beinn nýliði. Laufey Ólafsdóttir hefur spilað 23 landsleiki er að koma inn í landsliðið í fyrsta sinn síðan 2006. Hún hefur verið að spila mjög vel með Val í sumar og ég held að hún eigi fullt erindi í þennan hóp," sagði Sigurður Ragnar en Laufey hefur aldrei spilað fyrir hann áður.

„Okkur hefur gengið mjög vel á þessu ári og við spiluðum úrslitaleik á Algarve og unnum þrjár sterkar þjóðir þar. Við byrjuðum þessa undankeppni vel með því að vinna Búlgaríu 6-0. Nú reyna verulega á liðið í tveimur erfiðum leikjum á móti Noregi og Belgíu," sagði Sigurður og hann biðlað til íslensku þjóðarinnar að fjölmenna á leikinn.

„Vonandi fáum við góðan stuðning í þessum leikjum. Þetta eru mjög sterkir andstæðingar. Noregur er ein af fáum þjóðum sem hefur orðið Heimsmeistarar, Evrópumeistarar og Ólympíumeistarar. Þær eru í tíunda sæti á heimslistanum. Við höfum mætt þeim nokkrum sinnum undanfarin ár og það hafa verið jafnir og skemmtilegir leikir," sagði Sigurður Ragnar og bætti við:

„Ég held að góður stuðningur hér gæti hjálpað okkur að klára þær. Belgía hefur líka verið að ná góðum úrslitum því þær unnu Rússland á dögunum en Rússland var í síðustu lokakeppni EM. Í maí unnu þær líka Suður-Kóreu sem er fyrir ofan okkur á heimslistanum.  Ég á von á tveimur mjög erfiðum leikjum," sagði Sigurður Ragnar en hann vill ekki stilla Noregsleiknum upp sem úrslitaleik.

„Þetta er mjög mikilvægur leikur en ég held að við séum í riðli núna sem er mikið jafnari og erfiðari en við höfum áður verið í. Ég vil ekki beint tala um úrslitaleik því þetta er annar leikurinn okkar í mótinu en við þurfum að halda vel á spöðunum. Við stefnum á að vinna riðilinn og þá þurfum við að vinna alla þessa leiki. Ég á ekki von á því að Noregur misstígi sig mikið," sagði Sigurður Ragnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×