Tónlist

Sömdu glænýtt lag um Ben Stiller

"Ben, þú röltir um á Nesinu. Ég sá mynd af því á fésinu," segir meðal annars í laginu Ben sem flutt var í Laugardagskaffinu um helgina.
"Ben, þú röltir um á Nesinu. Ég sá mynd af því á fésinu," segir meðal annars í laginu Ben sem flutt var í Laugardagskaffinu um helgina.
Félagarnir Atli Fannar og Haukur Viðar fóru á kostum eins og venjulega í útvarpsþættinum Laugardagskaffinu á X-inu á laugardaginn. Meðal þess sem þeir félagar buðu upp á var stórskemmtilegt og glænýtt lag um Ben Stiller.

Lagið heitir Ben, enda er það endurgerð á öðru frægu lagi sem þeir félagar vilja leyfa hlustendum að átta sig á hvað er.

Hægt er að hlusta á lagið Ben hér fyrir ofan eða á útvarpssíðu Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×