Íslenski boltinn

Sara Björk: Líður frekar ömurlega

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir átti erfitt með að fela vonbrigði sín eftir markalausa jafnteflið gegn Belgíu í kvöld.

"Mér líður frekar ömurlega eins og líklega flest öllum stelpunum," sagði Sara.

"Ég veit ekki alveg hvað var í gangi. Ég veit ekki hvort við vorum of kokhraustar eftir leikinn gegn Norðmönnum en mér fannst bara ekkert ganga upp hjá okkur. Við fengum fullt af færum en nýttu þau ekki."

"Við þurfum að taka okkur á, þessi leikur er búinn og við þurfum að hugsa um næsta leik," sagði Sara Björk að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×